Handbolti

Guðjón: Vorum sjálfum okkur verstir

Henry Birgir Gunnarsson í Jönköping skrifar

Guðjón Valur Sigurðsson var sár eftir tapið í kvöld enda veit hann sem er að íslenska liðið getur mikið betur en það sýndi í kvöld.

"Þetta er hálfömurleg og leiðinleg tilfinning. Mér finnst við hafa verið að tapa fyrir liði sem er ekki betra en við," sagði Guðjón Valur svekktur.

"Við náum ekki upp sömu vörn og við höfum haft til þessa. Sóknarleikurinn er of hægur. Við skjótum mikið í markvörðinn þeirra. Þeir eru að spila sinn besta leik í langan tíma en þetta er sárt og leiðinlegt. Mér fannst þetta óþarfi og við vorum í raun sjálfum okkur verstir," sagði Guðjón en hann vildi ekki ræða frammistöðu dómaranna.

"Spánverjar eru næstir og þeir eru með hörkulið og stóran hóp. Þeir eru stórir og þungir og erfitt við þá að eiga. Við þurfum að undirbúa okkur vel fyrir þann leik og vera klárir. Verðum að ná upp baráttunni og geðveikinni í þeim leik."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×