Handbolti

Risamyndasyrpa úr leik Íslands og Noregs

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar

Ísland vann í gær stórglæsilegan sjö marka sigur á Noregi, 29-22, á HM í handbolta í Svíþjóð.

Leikurinn var í lokaumferð riðlakeppninnar en Ísland vann alla sína leiki í B-riðli og fer því með flest möguleg stig með sér í milliriðlakeppnina. Ísland leikur í milliriðli 1 sem fer fram í Jönköping og mætir Þýskalandi á morgun.

Stemningin á leiknum í gær var mögnuð og var Valgarður Gíslason, ljósmyndari Vísis og Fréttablaðsins, með myndavélina á lofti allan leikinn og gott betur.

Myndirnar hans má sjá með því að smella á hlekkinn hér fyrir neðan.



Alexander Petersson fagnar eftir leik.Mynd/Valli



Fleiri fréttir

Sjá meira


×