Vetrarsólstöður á morgun, 22. desember 21. desember 2011 11:38 Sólin verður á lofti í rúmar fjórar klukkustundir á Þingvöllum á morgun, stysta dag ársins.
Vetrarsólstöður verða í ár á morgun, 22. desember, nánar tiltekið klukkan hálfsex að morgni, samkvæmt upplýsingum Almanaks Háskóla Íslands. Í Reykjavík verður birting þennan stysta dag ársins klukkan 10.03 en myrkur klukkan 16.49. Sólris verður í Reykjavík á morgun klukkan 11.22 en sólarlag klukkan 15.30. Þorsteinn Sæmundsson, annar ritstjóra almanaksins, segir breytilegt eftir öldum hvaða dag ársins vetrarsólstöður ber upp en þau geti orðið frá 20. til 23. desember. Það séu aðallega hlaupárin sem rugli þessu. Algengasta dagsetningin á þessari öld er 21. desember en á síðustu öld var það 22. desember, að sögn Þorsteins. Vetrarsólstöður tákna að eftir morgundaginn fer daginn að lengja, reyndar aðeins um hænufet fyrstu dagana. Þannig verður birtutíminn á aðfangadag búinn að lengjast um þrjár mínútur í Reykjavík. Mánuði síðar verður birtutíminn búinn að lengjast um eina og hálfa klukkustund. Á Akureyri verður sólris á morgun klukkan 11.38 en sólarlag klukkan 14.44, á Norðfirði rís sólin klukkan 11.08 en sest klukkan 14.38 en stystur verður dagurinn hérlendis í Grímsey á morgun. Þar kemur sólin upp klukkan 12.03 en sest klukkan 14.18, samkvæmt Almanaki Háskólans.
Mest lesið Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum Erlent Fleiri fréttir Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Sjá meira