Aðvörun! Grétar Mar Jónsson skrifar 22. júní 2011 15:00 Nú er ljóst að ríkistjórnin ætlar að beygja sig undir vilja LÍÚ og SA og með því tekur hún hagsmuni fárra fram yfir heildarhagsmuni. Ríkistjórnin hefur fallið frá því sem lofað var í stjórnarsáttmálanum um að breytingar yrðu gerðar á núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi. Þess í stað verður núverandi handhöfum afhentur nýtingarrétturinn á sjávarauðlindinni í 23 ár. Hrunameistararnir Halldór Ásgrímsson og Davíð Oddsson leyfðu sér aldrei að láta nýtingarréttinn af hendi í meira en eitt ár í einu. Það ætlar hins vegar ríkisstjórnin sem setti á stofn mannréttindaráðuneyti að gera. Því það frumvarp sem nú liggur fyrir hunsar mannréttindaálit Sameinuðu þjóðanna og íslenska stjórnarskrá. Núverandi frumvarp tryggir núverandi handhöfum kvótans nýtingarréttinn til 23 ára. Fyrir það er þeim ætlað að greiða 5 milljarða sem eru smámunir í ljósi þess að afskrifaðir voru 2,6 milljarðar af smábátaútgerð í eigu Skinneyjar-Þinganess á síðasta ári. Hækka á veiðigjald úr 6 krónum í 12 sem er langt frá markaðsverði sem oftast er hægt að sjá á vef LÍÚ. Þetta er verra en Magma-dæmið því þar var þó öllum gefinn kostur á að bjóða í nýtingarréttinn. Boðaðar breytingar eru stærsti glæpur Íslandssögunnar og það er ekki sátt um þær. En forsenda framfara og uppbyggingar er að skapa sátt. Það þarf að koma í veg fyrir að þeir hinir sömu og áttu stóran þátt í hruninu fái áfram að mata krókinn á kostnað almennings í landinu. Útgerðarmenn boða verri lífskjör ef hróflað verður við sérhagsmunum þeirra. Bankamenn gerðu slíkt hið sama fyrir hrun. Undan þeirra kröfum var látið og við vitum öll til hvers það leiddi. Engin lýðræðisþjóð lætur af hendi nýtingarrétt til sérhagsmunaaðila til svo langs tíma eins og núverandi stjórnvöld ætla að gera. Þjóðin þarf á því að halda að hún fái öll notið arðsins af auðlind sinni til að komast út úr þeim vanda sem hún er nú að takast á við. Íslensk alþýða þarf að rísa upp og berja frá sér og tryggja að heildarhagsmunir verði teknir fram yfir hagsmuni fárra sem hafa það eitt að markmiði að hagnast án tillits til þess sem kemur heildinni til góða. Pottaleiðin breytir engu þar um því núverandi handhafar aflaheimilda nota og koma til með að nýta alla pottana. Allir geta í dag fengið að veiða úr skötuselspottinum. Þeir sem þegar eiga kvóta í skötusel geta leigt frá sér veiðiheimildir fyrir 350 kr. og leigt til sín á 120 kr. frá ríkinu. Þeir sem fá línuívilnun í dag eru þeir sem eru með aflaheimildir því sá sem á ekki aflaheimildir fær ekkert. Þeir sem fá byggðarkvóta eru þeir sem eiga aflaheimildir því til að fá byggðarkvóta þarf að leggja til tonn á móti tonni. Þeir sem nýta rækjuna eru þeir sem eiga fyrir aflaheimildir í þorski og grálúðu. Þetta eru staðreyndir málins og það er mikill misskilningur að núverandi stjórnarfrumvarp skerði á einhvern hátt hagkvæmni eða möguleika útgerðarfyrirtækja í landinu. Því er betra að gera ekkert en þessa vitleysu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Sjá meira
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun