Allt á huldu um eignarhaldið á Sjóvá Þorbjörn Þórðarson skrifar 20. janúar 2011 12:35 Sjóvá - ekki liggur fyrir hverjir verða eigendur félagsins þar sem SF1 sjóðurinn hefur ekki verið fjármagnaður.
Kaupin á Sjóvá hafa ekki verið fjármögnuð og óvíst er hverjir verða meirihlutaeigendur í Sjóvá því ekki hafa skuldbindandi loforð komið frá þeim fagfjárfestum sem eiga að mynda sjóðinn SF1. Stefnir, rekstraraðili sjóðsins, hefur verið í viðræðum við lífeyrissjóði og aðra og er að safna fjárfestum í sjóðinn. Eignasafn Seðlabankans, sem er dótturfélag bankans og heldur utan um 73 prósenta hlut í tryggingafélaginu Sjóvá gekk í gær frá sölu á 52,4 prósenta hlut í félaginu til sjóðsins SF1 sem er á vegum Stefnis hf., dótturfélags Arion banka. Bankinn kemur ekki nálægt kaupunum og mun ekki eiga neitt í Sjóvá, enda er Stefnir sjálfstætt fjármálafyrirtæki og munu fagfjárfestar mynda eigendahóp SF1 sjóðsins.Enginn búinn að skrifa undir Miklir fyrirvarar eru við kaupin sem kynnt voru í gær, m.a við fjármögnun. Að sögn Flóka Halldórssonar, framkvæmdastjóra Stefnis, eru engin skuldbindandi loforð komin fram af hálfu þeirra sem Stefnir hefur verið í viðræðum við um að fjárfesta í sjóðnum. Ekki er því komin endanleg mynd á hópinn og fyrirtækið er í raun að safna fjáfestum í sjóðinn, en lífeyrissjóðir eru stærstu viðskiptavinir Stefnis. SF1 sjóðurinn var með Heiðar Má Guðjónssyni og félögum áður en þeir drógu sig út úr söluferlinu. Flóki sagði að SF1 hefði verið að skoða Sjóvá í tæpt ár, en sjóðurinn var sérstaklega stofnaður með það fyrir augum að fjárfesta í fyrirtækinu. Hann vildi ekki svara því hvort Stefnir hefði fengið munnlegt samþykki frá einhverjum fjárfestum um að vera með í kaupunum. Söluferlið á Sjóvá hafði staðið yfir í tíu mánuði þegar hópur fjárfesta undir forystu Heiðars Más Guðjónssonar hagfræðings dró sig út úr því í nóvember. Heiðar Már lýsti því yfir að Seðlabankinn, sem fer með 73 prósenta hlut í gegnum dótturfélag sitt, hefði verið mótfallinn því að þeir eignuðust félagið og sagði vinnubrögð bankans ófagleg og í andstöðu við lög. Hann kvartaði jafnframt til bankaráðs bankans og til umboðsmanns Alþingis. Seðlabankinn hafnaði þessum ásökunum. Eftir að Heiðar Már og félagar drógu sig út úr ferlinu tók bankinn upp þráðinn þar sem frá var horfið og hóf viðræður við aðra áhugasama kaupendur. Meiri peningar í kassann strax Samkvæmt upplýsingum fréttastofu gat Eignasafn Seðlabankans valið úr tveimur kostum á þessu stigi í söluferlinu. Annars vegar var á borðinu tilboð sem var efnislega samhljóða tilboði Heiðars Más og félaga í haust. Hins vegar tilboðið frá SF1 sjóðnum og mat Seðlabankinn það hagstæðara en tilboðið sem barst í haust. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu eru tvær ástæður fyrir því. Annars vegar var meirihluti seldur í gær til SF1 og hins vegar kom meiri peningur strax við söluna, en sala á 52,4 prósenta hlut núna á 4,9 milljarða gerir ráð fyrir heildarvirði fyrirtækisins upp á 9,4 milljarða króna. Heiðar Már og félagar hans sem drógu sig út úr söluferlinu á Sjóvá í nóvember sögðust hafa gert tilboð sem gerði ráð fyrir heildarvirði upp á 11 milljarða króna. Seðlabankinn hefur hins vegar aldrei staðfest þá upphæð. Heiðar Már vildi ekki koma í viðtal vegna sölunnar á Sjóvá, en lögmaður hans sagði að hann vonaðist til þess að nýir eigendur bæru gæfu til að reka félagið vel og óskaði þeim alls hins besta. thorbjorn@stod2.is
Mest lesið Húsið sem næstum gleymdist: „Eins og kýlt í hjartað á mér“ Atvinnulíf Moldrík með ADHD: Hafa getuna til að horfa út fyrir boxið Atvinnulíf Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu Viðskipti innlent Alltaf jafn hressandi að fara út og tala aðeins við hundinn Atvinnulíf „Beindu skammbyssu að höfðinu á mér og sögðu: I will kill you“ Atvinnulíf Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Viðskipti innlent „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Viðskipti innlent Þórarinn dæmdur fyrir markaðsmisnotkun Viðskipti innlent Ríteil Kids hættir rekstri Viðskipti innlent Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Viðskipti erlent Fleiri fréttir Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Markaðurinn tók tíðindunum vel Töldu nauðsynlegt að taka stærra skref en lutu í lægra haldi Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Gengið í Icelandair rýkur upp í kjölfar fregna af tilboði í Fly Play Europe Icelandair ræðir um kaup á dreggjum Play Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní Ólafur Björn til liðs við Jónsbók Fyrirhugað flugfélag vekur athygli en engar leyfisumsóknir liggja fyrir Árni nýr stjórnarformaður Íslandsstofu Brimgarðar kaupa tíu milljónir hluta í Reitum SKE gert afturreka með ógnarlanga stefnu og kærir til Landsréttar „Eins rangt og það getur orðið“ að bankarnir hafi stungið lækkun í vasann Gagnaver gæti hitað upp hús Bolvíkinga Ríteil Kids hættir rekstri Bankaskatturinn á að skila sex milljörðum í ríkissjóð „Við erum ekkert æst í að fá nýjan skatt“ Loka bráðum á 3G-kerfið Sigurjón fékk heiðursverðlaun SVEF Bein útsending: Ársfundur SFS - Tækifæri á flekaskilum Kemi og Fálkinn Ísmar sameinast Breytingar á stjórn Sýnar Vill fresta atkvæðagreiðslunni til að greiða fyrir vaxtalækkun Þrotabú Wow air verður af hundruðum milljóna króna Ingunn nýr innri endurskoðandi borgarinnar Jóhann Már verður framkvæmdastjóri Wolt á Íslandi Innleiða verði „einhvers konar verðþak á olíu“ Vaxtahækkun í maí blasi við Sjá meira