Handbolti

Snorri Steinn: Höfum ekki gert eitt né neitt á þessu móti

Hörður Magnússon íþróttafréttamaður á Stöð 2 Sport ræddi við Snorra Stein Guðjónsson í dag og þar ræddu þeir um leikinn gegn Austurríki. Hörður spurði Snorra út í fyrri hálfleikinn gegn Austurríki þar sem fátt gekk upp hjá íslenska liðinu og hvort það væri áminning fyrir íslenska liðið. Snorri svaraði því fagmannlega.

Leikstjórnandinn segir m.a. að reynsla liðsins frá fyrri stórmótum hafi þjappað liðinu vel saman og menn vita hvað þarf að gera til þess að ná árangri. „Við höldum okkur á jörðinni, það er bara þannig. Við erum ekki búnir að gera eitt eða neitt á þessu móti þótt við höfum unnið einhverja fjóra leiki," segir Snorri.

Viðtalið í heild sinni má skoða með því að smella á hnappinn hér fyrir ofan.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×