Fréttir vikunnar: Gunnar yfirheyrður og fimmta hverju fóstri eytt 1. maí 2011 21:00
Það var í byrjun vikunnar sem Vísir greindi frá því að Gunnar Þorsteinsson, forstöðumaður í Krossinum hefði mætt til yfirheyrslu hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu vegna ásakana um kynferðisbrot. Sjálfur sagði hann síðar í viðtali við Vísi að hann væri bjartsýnn á niðurstöðuna. „Þetta klárast sína réttu boðleið og ég er mjög bjartsýnn á góða niðurstöu," sagði Gunnar, þegar hann var inntur eftir því hvert framhald málsins yrði. Hann hefur ávallt neitað ásökunum kvennanna.Þremenningarnir ætla ekki að stofna stjórnmálaflokk.Þingmenn Vinstri grænna, þau Lilja Mósesdóttir, Atli Gíslason og Ásmundur Einar Daðason, sem öll yfirgáfu þingflokk Vinstri grænna, ætla ekki að stofna nýjan þingflokk. Þetta kom fram í vikunni en í tilkynningu sem þremenningarnir sendu frá sér sagði: „Staðan í íslenskum stjórnmálum er óráðin. Það er niðurstaða okkar að ekki sé tímabært að svo stöddu að stofna nýjan þingflokk. Við munum starfa sem óháðir þingmenn og í anda þeirra hugsjóna sem við töluðum fyrir í aðdraganda síðustu kosninga." Annar þingmaður var hinsvegar ósáttur út í bloggskrif þingmanns Vinstri grænna. Þannig sendi lögfræðistofa, fyrir hönd Guðlaug Þór Þórðarson, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, bréf til Björns Vals Gíslasonar, og honum hótað málssókn bæðist hann ekki afsökunar á skrifum sínum. Björn Valur skrifaði um umdeilda styrkveitingar til Sjálfstæðisflokksins sem upplýst var um á Fréttastofu stöðvar 2 og Vísis árið 2009. Björn Valur segir Guðlaug sekan um að hafa þegið mútugreiðslur, sem er refsivert samkvæmt almennum hegningarlögum. Hann fékk fimm daga til þess að biðjast afsökunar, gerði hann það ekki, yrði honum stefnt.Þá greindi Vísir frá því að næstum fimmta hverju fóstri á Íslandi er eytt, samkvæmt tölum sem birtust í Talnabrunni Landlæknis í vikunni. Sé Ísland borið saman við önnur Norðurlönd eru tiltölulega fáar fóstureyðingar framkvæmdar hér á landi miðað við annarsstaðar. Tölur Landlæknis eru úr skýrslunni Induced aborttions in the Nordic countries, en hún byggir á gögnum frá árinu 2009. Það ár voru samtals tæplega 81 þúsund fóstureyðingar gerðar á Norðurlöndunum. Hlutfallslega flestar voru gerðar í Svíþjóð, eða 335 á hverja 1000 lifandi fædda en fæstar í Finnlandi. Á Íslandi voru hins vegar gerðar 193 fóstureyðingar á móti hverjum 1000 sem fæddust lifandi. Í gær fékk lögreglan svo tilkynningu um konu sem hafði tekið inn baneitrað fíkniefni. Stúlkan lést á heimili í Árbænum og reyndist hafa tekið inn baneitrað amfetamín. Konan var 21 árs gömul en hún átti afmæli daginn áður en hún lést. Yfir tíu manns hafa verið handteknir vegna málsins.
Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan atburð Innlent Enok ákærður fyrir að fleygja manni niður tröppur og berja annan Innlent Segja „alvarlegar staðreyndavillur“ í umfjöllun Kastljóss Innlent „Ég sé engar staðreyndavillur í þessum þætti“ Innlent Séra Guðrún kjörin biskup Íslands Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Skítkastið var ógeðslegt“ Innlent Skotárás við heimili Drake Erlent Lífverðir Selenskís sakaðir um að skipuleggja banatilræði Erlent Stillir viðtækið á alheimsdögunina Innlent Fleiri fréttir Júróvisíon í skugga stríðsreksturs og sársaukafullar uppsagnir Enok ákærður fyrir að fleygja manni niður tröppur og berja annan Undirbúa hópuppsögn hjá Grindavíkurbæ Töluverð óvissa um framvindu jarðhræringanna Gæsluvarðhald yfir manninum framlengt „Við þurfum ekki að verjast neinu“ „Ég sé engar staðreyndavillur í þessum þætti“ Aðstæður fyrir stýrivaxtalækkun á morgun Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan atburð Séra Guðrún kjörin biskup Íslands Segja „alvarlegar staðreyndavillur“ í umfjöllun Kastljóss SA og SSF skrifuðu undir langtímakjarasamning Agnes segir nýjan biskup taka við annarri kirkju en hún tók við Stýrivextir, Eurovision og biskupskjör „Skítkastið var ógeðslegt“ Fiskadauði í einni af mestu sjóbirtingsveiðiám landsins Valtýr ráðinn yfirlæknir Ný nálgun Samfylkingar í orkumálum konfekt í eyrum Jóns Vilja tryggja öryggi starfsfólks í vegavinnu „Massíf slysaslepping á vondu frumvarpi“ Stillir viðtækið á alheimsdögunina Þrír handteknir vegna vopnalagabrota og tveir vegna líkamsárásar Beinagrindur og ástarsorg á Bessastöðum Alþjóðanemar neyðist til að vinna svart á Íslandi „Tjónið af þessum slóðaskap hleypur á fleiri milljörðum“ Stóra stundin að renna upp: Bjartsýn en með báða fætur á jörðinni Sanngirnisbótafrumvarpið sé blekking Faðir mannsins sem lést á Litla-Hrauni krefst umbóta Kveikt í papparusli í Glæsibæ Flugfélögin grípa til ráðstafana vegna verkfallsaðgerða Sjá meira