Íbúum bent á að halda sig innan dyra 21. maí 2011 22:21 Mynd/Benjamín Andri Elvarsson
Vegna eldgossins í Grímsvötnum hefur orðið vart við öskufall á Kirkjubæjarklaustri og fleiri stöðum á Suðurlandi. Askan er mjög fín og berst til suðausturs. Almannavarnir benta íbúum á svæðinu að halda sig innan dyra og kynna sér bækling um öskufall sem hægt er að nálgast á heimasíðu almannavarna. Þá er bændum ráðlagt að huga að búsmala allt vestan frá Síðu og austur fyrir Reynivelli. Veginum yfir Skeiðarársand hefur verið lokað og er hann vaktaður af lögreglu. Gosmökkurinn er talin vera í 40 þúsund feta hæð en hann sést víða. Fjölmargir hafa haft samband við fréttastofu eftir að eldgosið hófst á sjöunda tímanum í kvöld. Ennfremur hafa margir gefið sér tíma og sent myndir og fyrir það eru starfsmenn Vísis þakklátir. Um leið eru aðrir lesendur Vísis sem eiga myndir eða myndskeið af eldgosinu í Grímsvötnum vinsamlegast beðnir um að senda myndefnið á frettir@stod2.is.
Tengdar fréttir Gosmökkurinn sést víða Gosmökkurinn frá Grímsvötnum í Vatnajökli sést víða og hefur risið hratt frá því að hans varð vart. Íbúar á Selfossi, Laugarvatni og Flúðum eru meðal þeirra sem haft hafa samband við fréttastofu síðustu mínútur. Samkvæmt sjónarvottum á Flúðum er mökkurinn dökkur neðst en að mestu hvítur. Samkvæmt tilkynningu frá almannavörnum sést mökkurinn einnig frá Skaftafelli, Vík og víðar á Suðurlandi. 21. maí 2011 19:40 Gosmökkurinn sést frá Reykjavík Gosið í Grímsvötnum virðist vera mjög öflugt, segir Hjörleifur Sveinbjörnsson, jarðskjálftafræðingur á Veðurstofu Íslands, í samtali við Vísi. Hann segir að mökkurinn sjáist alla leið frá Reykjavík. 21. maí 2011 22:07 Starfsmenn Vegagerðarinnar bíða átekta Engin ákvörðun hefur verið tekin um að loka vegum vegna eldgossins sem hófst í Grímsvötnum í Vatnajökli á sjöunda tímanum í kvöld. Starfsmenn starfsstöðva Vegagerðarinnar í Vík í Mýrdal og á Höfn í Hornarfirði bíða átekta. "Við fylgjumst með þróuninni,“ sagði Bjarni Jón Finnsson, yfirverkstjóri í Vegagerðarinnar í Vík í Mýrdal, í samtali við fréttastofu. Á þessum tímapunkti liggur ekki fyrir hvort loka þurfi vegum eða rjúfa skörð í vegi. 21. maí 2011 21:33 Allir viðbragðsaðilar komnir af stað vegna gossins "Það er búið að setja allt í gang, almannavarnir og búið að tilkynna þetta erlendis,“ segir Hjörleifur Sveinbjörnsson, skjálftafræðingur hjá Veðurstofu Íslands. Hann segir að strókurinn frá gosinu sjáist víða af á landinu. "Hann sést jafnvel frá Selfossi,“ segir Hjörleifur. Því sé ekki um að villast að gosið sé hafið. Hins vegar sé ekki ljóst hversu mikið gosið sé. Verið sé að undirbúa flug til að sjá gosið og finna nákvæma staðsetningu þess. Allt bendi hins vegar til þess að það sé í Grímsvötnum. 21. maí 2011 19:41 Gosmökkurinn er rosa sjónarspil "Það er rosa sjónarspil að sjá þetta,“ segir Laufey Stefánsdóttir, sem er stödd ásamt fjölskyldu og vinum í sumarbústaðnum sínum á Hellu. Hún segir að gosmökkurinn sjáist mjög vel þaðan. Gos hófst i Vatnajökli rétt fyrir klukkan sjö í kvöld. Eins og fram kom á Vísi fyrr í kvöld eru viðbragðsaðilar á leið í flug á eftir til að greina nánar staðsetningu þess, en langlíklegast þykir að það sé í Grímsvötnum. 21. maí 2011 19:55 Tengja gosið ekki heimsendaspám Það hljóp aldeilis á snærið hjá gestum á Islandia Hótel á Núpum nærri Kirkjubæjarklaustri. Gestirnir, sem eru frá Hollandi og Frakklandi, auk Íslendinga, höfðu ekki átt von á því að verða vitni að eldgosi þegar þeir pöntuðu sér gistingu. Þeim brá því heldur betur í brún þegar Vatnajökull tók að gjósa um sjöleytið í kvöld. Líklegast er að það séu Grimsvötn sem gjósi, eins og fram hefur komið. 21. maí 2011 20:39 Eldgos að hefjast í Grímsvötnum Á sjöunda tímanum í kvöld komu fram merki á jarðskjálftamælum um að eldgos gæti verið að hefjast eða er hafið í Grímsvötnum í Vatnajökli. Samhæfingarstöðin í Skógarhlíð hefur verið virkjuð vegna þessa. Frekari upplýsingar verða gefnar um leið og þær berast, að því er fram kemur í tilkynningu frá almannavörnum 21. maí 2011 19:06 Búist við hlaupi í Grímsvötnum "Það má búast við einhverju hlaupi í Grímsvötnum vegna gossins,“ segir Matthew Roberts, vatnamælingamaður hjá Veðurstofu Íslands. Hann segir þó að það liggi fyrir að vegna þess að það varð jökulhlaup í Grímsvötnum í nóvember í fyrra þá sé hugsanlegt að hlaupið verði ekki stórt. "Spurningin er núna hvar gosið er. Við vitum það ekki fyrir víst hvar það er," segir Matthew. 21. maí 2011 21:21 Eldgos í Grímsvötnum staðfest „Það sést til gosmakkar. Þannig að það er staðfest að eldgos er hafið," segir Víðir Reynisson, hjá almannavörnum Ríkislögreglustjóra, í samtali við Vísi. Hann segir ómögulegt að segja til um það hversu mikið gosið er. 21. maí 2011 19:26 Flogið um Keflavíkurflugvöll þrátt fyrir gosið Eldgosið í Vatnajökli kemur ekki í veg fyrir að hægt sé að lenda á eða taka á loft á Keflavíkurflugvelli, segir Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi Isavia. 21. maí 2011 20:53 Ekki þörf á fólksflutningum vegna gossins Lögreglan á Hvolsvelli og í Vík fylgist með umferð um Þjóðveg 1 vegna eldgossins í Grímsvötnum, samkvæmt upplýsingum frá Sveini Kristjáni Rúnarssyni yfirlögregluþjóni. Hann segir þó að ekki sé þörf á því að rýma nein hús í nágrenni við Vatnajökul vegna gossins. Aðstæður eru því allt öðruvísi í þessu gosi en var fyrir rúmu ári síðan þegar Fimmvörðuháls og Eyjafjallajökull gusu. Þá urðu mestu fólksflutningar á Íslandi frá þvi í Heimaeyjargosi árið 1973. 21. maí 2011 20:13 Veginum um Skeiðarársand lokað Veginum um Skeiðarársand hefur verið lokað um óákveðinn tíma vegna öskufalls frá eldgosinu í Grímsvötnum og hófst fyrr í kvöld. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. 21. maí 2011 21:37 Mest lesið „Ég hef aldrei upplifað annan eins harm“ Innlent Hrindir af stað söfnun fyrir móður stúlkunnar sem lést í Suður-Afríku Innlent Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Erlent „Þetta hefur verið þungur tími“ Innlent Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Erlent Undirbúningur árásarinnar stóð yfir í marga mánuði Erlent Naut aðstoðar samskiptasérfræðinga vegna veiðigjaldamálsins Innlent Trump skipar sendifulltrúa fyrir Grænland Erlent Hundrað og fjörutíu milljarða bótakrafa á Samherja sé súrrealísk Innlent Varð vitni að ótrúlegum norðurljósum: „Mér fannst þetta magnað“ Innlent Fleiri fréttir Birtir drög að lögum um lagareldi: Hyggst leggja niður Fiskeldissjóð Hundrað og fjörutíu milljarða bótakrafa á Samherja sé súrrealísk Skemmdir í kirkjugörðum vegna aksturs utan vegar Ólýsanlegur harmur fyrir fjölskylduna og söfnun hleypt af stokkunum „Ég hef aldrei upplifað annan eins harm“ Vill leiða lista Sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ „Þetta hefur verið þungur tími“ Naut aðstoðar samskiptasérfræðinga vegna veiðigjaldamálsins Hrindir af stað söfnun fyrir móður stúlkunnar sem lést í Suður-Afríku Varð vitni að ótrúlegum norðurljósum: „Mér fannst þetta magnað“ Færir nýársboðið fram á þrettándann Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu á Suðurlandi Leggur aftur til hverfislögreglustöð í Breiðholti Nú má heita Love, Tóní, Ranimosk og Draumur Kvartar til umboðsmanns og vonar að Vegagerðin sjái að sér Ætlar ekki að beita sér í máli starfsmanns Útlendingastofnunar „Ég vil ekki nokkurn tímann sjá neitt svona aftur“ Gyðingar á Íslandi upplifa aukinn ótta Ferðaþjónusta blómstrar í uppsveitum Árnessýslu „Þetta er bara ljótt“ Hljóti að vera komið að því að skoða öryggisgæslu við skóla Ætlar að skýra hvenær rjúfa megi þagnarskyldu Þagnarskylda heilbrigðisstarfsfólks og öryggisgæsla við grunnskóla Eyjólfur í orlof og Inga þrefaldur ráðherra Vegagerðin segir flóðin í Vík fyrirséð Fjölmiðlar, bókmenntir og hægrimennska á Sprengisandi „En hver sagði að þetta ætti að vera auðvelt?“ Milljónir til almannatengla og átta sinnum meira en í fyrra Grunuð um að koma til landsins til að brjóta á öldruðum Leggja hald á skip á alþjóðahafsvæði undan ströndum Venesúela Sjá meira
Gosmökkurinn sést víða Gosmökkurinn frá Grímsvötnum í Vatnajökli sést víða og hefur risið hratt frá því að hans varð vart. Íbúar á Selfossi, Laugarvatni og Flúðum eru meðal þeirra sem haft hafa samband við fréttastofu síðustu mínútur. Samkvæmt sjónarvottum á Flúðum er mökkurinn dökkur neðst en að mestu hvítur. Samkvæmt tilkynningu frá almannavörnum sést mökkurinn einnig frá Skaftafelli, Vík og víðar á Suðurlandi. 21. maí 2011 19:40
Gosmökkurinn sést frá Reykjavík Gosið í Grímsvötnum virðist vera mjög öflugt, segir Hjörleifur Sveinbjörnsson, jarðskjálftafræðingur á Veðurstofu Íslands, í samtali við Vísi. Hann segir að mökkurinn sjáist alla leið frá Reykjavík. 21. maí 2011 22:07
Starfsmenn Vegagerðarinnar bíða átekta Engin ákvörðun hefur verið tekin um að loka vegum vegna eldgossins sem hófst í Grímsvötnum í Vatnajökli á sjöunda tímanum í kvöld. Starfsmenn starfsstöðva Vegagerðarinnar í Vík í Mýrdal og á Höfn í Hornarfirði bíða átekta. "Við fylgjumst með þróuninni,“ sagði Bjarni Jón Finnsson, yfirverkstjóri í Vegagerðarinnar í Vík í Mýrdal, í samtali við fréttastofu. Á þessum tímapunkti liggur ekki fyrir hvort loka þurfi vegum eða rjúfa skörð í vegi. 21. maí 2011 21:33
Allir viðbragðsaðilar komnir af stað vegna gossins "Það er búið að setja allt í gang, almannavarnir og búið að tilkynna þetta erlendis,“ segir Hjörleifur Sveinbjörnsson, skjálftafræðingur hjá Veðurstofu Íslands. Hann segir að strókurinn frá gosinu sjáist víða af á landinu. "Hann sést jafnvel frá Selfossi,“ segir Hjörleifur. Því sé ekki um að villast að gosið sé hafið. Hins vegar sé ekki ljóst hversu mikið gosið sé. Verið sé að undirbúa flug til að sjá gosið og finna nákvæma staðsetningu þess. Allt bendi hins vegar til þess að það sé í Grímsvötnum. 21. maí 2011 19:41
Gosmökkurinn er rosa sjónarspil "Það er rosa sjónarspil að sjá þetta,“ segir Laufey Stefánsdóttir, sem er stödd ásamt fjölskyldu og vinum í sumarbústaðnum sínum á Hellu. Hún segir að gosmökkurinn sjáist mjög vel þaðan. Gos hófst i Vatnajökli rétt fyrir klukkan sjö í kvöld. Eins og fram kom á Vísi fyrr í kvöld eru viðbragðsaðilar á leið í flug á eftir til að greina nánar staðsetningu þess, en langlíklegast þykir að það sé í Grímsvötnum. 21. maí 2011 19:55
Tengja gosið ekki heimsendaspám Það hljóp aldeilis á snærið hjá gestum á Islandia Hótel á Núpum nærri Kirkjubæjarklaustri. Gestirnir, sem eru frá Hollandi og Frakklandi, auk Íslendinga, höfðu ekki átt von á því að verða vitni að eldgosi þegar þeir pöntuðu sér gistingu. Þeim brá því heldur betur í brún þegar Vatnajökull tók að gjósa um sjöleytið í kvöld. Líklegast er að það séu Grimsvötn sem gjósi, eins og fram hefur komið. 21. maí 2011 20:39
Eldgos að hefjast í Grímsvötnum Á sjöunda tímanum í kvöld komu fram merki á jarðskjálftamælum um að eldgos gæti verið að hefjast eða er hafið í Grímsvötnum í Vatnajökli. Samhæfingarstöðin í Skógarhlíð hefur verið virkjuð vegna þessa. Frekari upplýsingar verða gefnar um leið og þær berast, að því er fram kemur í tilkynningu frá almannavörnum 21. maí 2011 19:06
Búist við hlaupi í Grímsvötnum "Það má búast við einhverju hlaupi í Grímsvötnum vegna gossins,“ segir Matthew Roberts, vatnamælingamaður hjá Veðurstofu Íslands. Hann segir þó að það liggi fyrir að vegna þess að það varð jökulhlaup í Grímsvötnum í nóvember í fyrra þá sé hugsanlegt að hlaupið verði ekki stórt. "Spurningin er núna hvar gosið er. Við vitum það ekki fyrir víst hvar það er," segir Matthew. 21. maí 2011 21:21
Eldgos í Grímsvötnum staðfest „Það sést til gosmakkar. Þannig að það er staðfest að eldgos er hafið," segir Víðir Reynisson, hjá almannavörnum Ríkislögreglustjóra, í samtali við Vísi. Hann segir ómögulegt að segja til um það hversu mikið gosið er. 21. maí 2011 19:26
Flogið um Keflavíkurflugvöll þrátt fyrir gosið Eldgosið í Vatnajökli kemur ekki í veg fyrir að hægt sé að lenda á eða taka á loft á Keflavíkurflugvelli, segir Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi Isavia. 21. maí 2011 20:53
Ekki þörf á fólksflutningum vegna gossins Lögreglan á Hvolsvelli og í Vík fylgist með umferð um Þjóðveg 1 vegna eldgossins í Grímsvötnum, samkvæmt upplýsingum frá Sveini Kristjáni Rúnarssyni yfirlögregluþjóni. Hann segir þó að ekki sé þörf á því að rýma nein hús í nágrenni við Vatnajökul vegna gossins. Aðstæður eru því allt öðruvísi í þessu gosi en var fyrir rúmu ári síðan þegar Fimmvörðuháls og Eyjafjallajökull gusu. Þá urðu mestu fólksflutningar á Íslandi frá þvi í Heimaeyjargosi árið 1973. 21. maí 2011 20:13
Veginum um Skeiðarársand lokað Veginum um Skeiðarársand hefur verið lokað um óákveðinn tíma vegna öskufalls frá eldgosinu í Grímsvötnum og hófst fyrr í kvöld. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. 21. maí 2011 21:37
Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Erlent
Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Erlent