Tæplega 1100 ábendingar bárust um bótasvik Sigríður Mogensen skrifar 4. janúar 2011 18:33
Hátt í 140 milljónir króna spöruðust á síðasta ári vegna ábendinga um atvinnuleysisbótasvik. Yfir 200 manns sem sviku út bætur voru teknir af atvinnuleysisskrá eftir ábendingar. Vinnumálastofnun hefur átt fullt í fangi við að skrá fólk á atvinnuleysisbætur á undanförnum misserum, enda fór að bera á mikilli aukningu á atvinnuleysi strax eftir hrun. En ekki eiga allir sem skráðir eru atvinnulausir rétt á bótum og hefur komið í ljós að fjölmargir misnota kerfið. Á síðasta ári bárust alls tæplega 1100 ábendingar vegna meintra svika á atvinnuleysisbótum, en langflestar þeirra bárust frá almenningi. Fréttastofa fékk upplýsingar hjá stofnuninni um þetta en en eins og sjá má hér áttu flestar ábendingarnar við um svarta vinnu (59%). Næst algengastar voru ábendingar vegna ferða erlendis (29%) en samkvæmt lögum ber einstaklingum sem eru á bótum frá Íslandi að vera staddir hér á landi. Ef fólk á skrá fer til útlanda ber því að tilkynna um ferðalagið og sá tími sem fólk er statt erlendis kemur til frádráttar á næstu greiðslu. Aðrir (12%) voru m.a. taldir stunda fullt nám meðfram bótum. Um 80% ábendinganna bárust í gegnum ábendingarhnapp á vef Vinnumálastofnunar. Alls voru 525 ábendingar teknar til frekari skoðunar af eftirlitsdeild Vinnumálastofnunar. Þessar skoðanir leiddu til þess að 209 einstaklingar voru teknir af atvinnuleysisskrá og hjá 74 voru greiðslur stöðvaðar í 2 til 3 mánuði. Þeim sem fengu ofgreiddar bætur var gert að greiða þær til baka og oft með 15% álagi. Vinnumálastofnun áætlar að 136 milljónir króna hafi sparast fyrir tilstuðlan ábendinga á síðasta ári og eru 50 mál ennþá í skoðun. Talið er að hert eftirlit með bótasvikum hafi í heild sparað ríkinu um 800 milljónir króna á rúmu ári. Þessi árangur náðist frá því að eftirlitsdeild stofnunarinnar var stofnuð í október í fyrra og þar til í nóvember síðastliðnum.
Mest lesið Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira