Símhlerunum beitt í meintu samráði Þorbjörn Þórðarson skrifar 31. mars 2011 19:15 Byko. Myndin er úr safni.
Símhlerunum var beitt í tengslum við rannsókn á samkeppnisbrotum Byko og Húsasmiðjunnar en þannig tókst lögreglu að afla mikilvægra sönnunargagna um meint samkeppnisbrot. Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra og Samkeppniseftirlitið framkvæmdu húsleitir hjá Byko og Húsasmiðjunni hinn 8. mars síðastliðinn í tengslum við rannsókn á samkeppnislagabrotum, en fyrirtækin tvö og verslunin Úlfurinn eru grunuð um ólögmætt verðsamráð við innflutning og sölu á timbri og annarri grófvöru. Fyrirtækin eru öll þrjú í samkeppni á þessu sviði en hafa átt í einhverjum mæli viðskipti innbyrðis. Alls voru nítján manns handteknir vegna málsins og yfirheyrðir en enginn þeirra var áfarm í haldi eftir yfirheyrslur. Rannsókn málsins er nú í fullum í gangi hjá efnahagsbrotadeild. Samkvæmt heimildum fréttastofu studdust efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra og Samkeppniseftirlitið við símhleranir við rannsókn málsins og voru þær í umsjá tæknideildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Samkvæmt heimildum Stöðvar 2 var mikilvægra gagna aflað með símhlerunum sem munu nýtast við rannsókn málsins. Stöð 2 hefur heimildir fyrir því að símar bæði Sigurðar Arnar Sigurðssonar, forstjóra Húsasmiðjunnar og Sigurðar E. Ragnarssonar, forstjóra Byko, hafi verið hleraðir í tengslum við rannsóknina. Hleranirnar voru þó mun víðtækari og náðu einnig til millistjórnenda beggja fyrirtækja en nöfn annarra stjórnenda sem hleraðir voru hafa þó ekki fengist upp gefin. Sigurður Arnar Sigurðsson, forstjóri Húsasmiðjunnar, vildi ekkert tjá sig um málið við fréttastofu í dag. Þá náðist ekki í Sigurð E. Ragnarsson, forstjóra Byko.
Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Erlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira