Bólusetningaræðið með eiturefnum Þorsteinn Scheving Thorsteinsson skrifar 22. desember 2011 06:00 Eitt af því sem Landlæknisembættið (sóttvarnalæknir) á að fylgjast með og gefa upplýsingar um til almennings er allt í sambandi við eiturefni. Ekki er hægt að segja að sóttvarnalæknir hafi nokkurn tíma farið eftir þessum lögum hvað varðar innihaldsefni bóluefna, þar sem embættið hefur svo vitað sé aldrei prentað eitt eða neitt í því sambandi handa almenningi. Af einhverjum ástæðum virðist sem að embættið leggi í raun mikið á sig til að halda upplýsingum frá almenningi en ekki að upplýsa, þá vaknar sú spurning; hvers vegna svo sé? Hvað þarf eiginlega að eiga sér stað til þess að farið sé eftir þessum lögum og upplýsingar um innihaldsefni bóluefna gefnar út, þurfa einstaklingar að veikjast alvarlega, enda á spítala eða látast af völdum bólusetninga til þess að farið verði að veita upplýsingar og gefa út á prenti handa almenningi? Það má vel vera að einhverjir myndu kippa sér upp við það ef þetta embætti eða hluti af því yrði lagt niður í núverandi mynd, þessi stofnun ef spurð er um öryggi bóluefna bendir alltaf á aðrar stofnanir. Það hefur reyndar hvarflað að fólki að þetta embætti sé eins og sérhagsmuna þrýstihópur (Lobby), er hvorki athugar reynslusögu bóluefna og klínískar rannsóknir, en bendir þess í stað eins og þrýstihópur á aðrar stofnanir, haldin þessari blindu stofnanatrú. Þrátt fyrir að til séu niðurstöður er sýna fram á töluverðan mun á bólusettum og óbólusettum, eða þar sem: Bólusett börn höfðu 120% meiri líkur á astma. Bólusettir drengir höfðu 317% meiri líkur á ADHD. Bólusettir drengir höfðu 185% meiri líkur á taugasjúkdómum. Bólusettir drengir höfðu 146% meiri líkur á einhverfu(generationrescue.org/pdf/survey.pdf), óbólusett börn með betri heilsu (vaccineinjury.info/images/stories/ias1992study.pdf), og bólusett börn með 2-5 sinnum fleiri sjúkdóma en óbólusett börn (healthfreedoms.org/2011/10/14/big-study-vaccinated-kids-2-5-more-diseases-than-unvaccinated/). Þarf hér samt sem áður að troða inn fleiri umdeildum bóluefnum, eins og núna þessu umdeilda Synflorix-bóluefni gegn pneumókokkum. Í öllum áróðrinum til stjórnmálamanna og almennings hefur sérstaklega verið passað upp á að minnast ekkert á tengsl bóluefnisins við 12 dauðsföll ungbarna í Argentínu, og tvö í Panama og Síle er komu upp í klínískum rannsóknum (mercola.com/sites/articles/archive/2008/09/06/argentina-investigates-deaths-of-vaccinated-children.aspx) eða neitt varðandi það að bóluefnið sé orðið þekkt erlendis fyrir að vera bæði hættulegt og umdeilt. Hvað þá á aukningu á alvarlegri lungnabólgu er gæti verið eftir bólusetningu (independent.co.uk/life-style/health-and-families/health-news/increase-in-severe-pneumonia-in-children-may-be-caused-by-vaccine-808633.html). Það er kannski rétt lýsing hjá henni dr. Sherri Tenpenny að lýsa svona löguðu sem gráðugri atlögu að almenningi. Því að hvað er þetta annað þegar heilbrigðisyfirvöld taka upp svona einhliða áróður fyrir lyfja- og bóluefnarisann og það með tiltölulega nýtt bóluefni án þess að minnast á einhvern af þeim mörgu vanköntum bóluefnisins með þessum innihaldsefnum, eins og t.d. aluminium phosphate er getur valdið taugaofnæmisröskunum. Ofnæmisröskunum allt frá svæðisbundnum lömunum, algjörum lömunum (mænusótt, lömunarveiki, heila- og/eða mænubólga= polio, poliomyelitis o.s.frv.) og allt að því skyndilegum ungbarna dauða (SIDS), vöggudauða og hryllilegum krampadauðdaga sem lýsir sér sem Shaken Baby Syndrome (novaccine.com/vaccine-ingredients/results.asp?s=2&sc=44&scientific=-&p=1). Ál er einnig tengt við sjúkdóminn Alzheimer, það mælist t.d. mikið meira álmagn í heila sjúklinganna en þeirra sem ekki hafa sjúkdóminn, auk þess sem eiturefnið ál er þekkt fyrir að valda hrörnun á beinum, beinmerg og heila. Menn ættu ekki heldur að reyna að segja að þetta bóluefni sé öruggt, þar sem vitað er um alvarlegar aukaverkanir. Markaðsleyfið var veitt þann 30. maí 2008 og langtímaniðurstöður því ekki til, og efast ég um að þessir embættismenn hér séu tilbúnir að taka á sig persónulegar fjárhagslegar ábyrgðir fyrir því að öll bóluefnin sem í notkun eru séu örugg. Það má kannski benda á það hér að lokum, að við búum ekki við það sama og aðrar þjóðir, hér hafa svo vitað sé yfirvöld (eða Landlæknisembættið) ekki komið fram og viðurkennt mistök eins og yfirvöld í Svíþjóð og Finnlandi gerðu, er þau viðurkenndu að tengsl væru á milli bóluefnisins gegn svínaflensu og svefnsýki/drómasýki (narcolepsy) og buðust reyndar til að greiða fórnarlömbum lyfja- og lækniskostnað eða skaðabætur (thelocal.se/tag/pandemrix#, og naturalnews.com/033816_swine_flu_vaccines_neurological_disorders.html). En hér á landi heyrist ekkert frá yfirvöldum þess efnis, hvað þá um að til standi að greiða þessum fórnarlömbum hér eitthvað, sennilega vegna þess að menn eru haldnir þessari blindu stofnanatrú að öll bóluefni sem hafa fengið markaðsleyfi séu örugg. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun Núll prósent skynsemi Lára G. Sigurðardóttir Skoðun Skömm stjórnvalda - íslensk börn með erlendan bakgrunn Birna Gunnlaugsdóttir Skoðun Svar við bréfi Ingós: 3.233.700.000 krónur Runólfur Ágústsson Skoðun Að fórna hamingju fyrir verslunarfrelsi Gunnar Hersveinn Skoðun Aðför að ungmennum (Í minningu Hamarsins) Óskar Steinn Jónínuson Ómarsson Skoðun Áhugaverðar ákvarðanir Sigurður Ingi Friðleifsson Skoðun Hvers eiga Vestfirðingar að gjalda? Ingólfur Ásgeirsson Skoðun Birgir Þórarinsson er enn að Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Til hamingju með daginn! Árni Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Til hamingju með daginn! Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Vetur að vori - stuðningur eftir óveður Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Skömm stjórnvalda - íslensk börn með erlendan bakgrunn Birna Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Að fórna hamingju fyrir verslunarfrelsi Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Er þensla vegna íbúðauppbyggingar? Jónas Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Birgir Þórarinsson er enn að Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Viðurkennum þjóðarmorð á Armenum Eiríkur Rögnvaldsson skrifar Skoðun Þegar kvíðinn tekur völdin Sóley Dröfn Davíðsdóttir skrifar Skoðun Atvinnulífið og fíkniefnasalan Ólafur Kjartansson skrifar Skoðun Drasl Hafþór Reynisson skrifar Skoðun Er lýðræðinu viðbjargandi? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Þegar forréttindafólk í valdastöðu skerðir mannréttindi jaðarsettra hópa Sema Erla Serdaroglu skrifar Skoðun Forsetapróf Auður Guðna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Aukin sala áfengis ógnar grundvallarmarkmiðum lýðheilsu Aðalsteinn Gunnarsson skrifar Skoðun Svik VG í jafnréttismálum Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir skrifar Skoðun Spennandi tímar fyrir ungt fólk í Hafnarfirði Kristín Thoroddsen,Margrét Vala Marteinsdóttir skrifar Skoðun Ingólfur krítar liðugt Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Fáu spáð en vel fylgst með Ari Trausti Guðmundsson skrifar Skoðun Armæða um íslenska tungu Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Það eru lög í landinu Líneik Anna Sævarsdóttir skrifar Skoðun Svar við bréfi Ingós: 3.233.700.000 krónur Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Úr buffi í klút Gunnhildur Birna Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Rétturinn til heilnæms umhverfis vs bæjaryfirvöld Hafnarfjarðar Björg Sveinsdóttir skrifar Skoðun Málsvari minksins Lárus Karl Arnbjarnarson skrifar Skoðun Skuldum við 17 þúsund íbúðir á höfuðborgarsvæðinu? Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Förum vel með byggingarvörur Eyþór Bjarki Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Gerum betur Kristín B. Jónsdóttir skrifar Skoðun Á tæpustu tungu Eiríkur Örn Norðdahl skrifar Skoðun Aðför að ungmennum (Í minningu Hamarsins) Óskar Steinn Jónínuson Ómarsson skrifar Skoðun „Betur borgandi ferðamenn“ Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Sjá meira
Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun
Skoðun Þegar forréttindafólk í valdastöðu skerðir mannréttindi jaðarsettra hópa Sema Erla Serdaroglu skrifar
Skoðun Spennandi tímar fyrir ungt fólk í Hafnarfirði Kristín Thoroddsen,Margrét Vala Marteinsdóttir skrifar
Skoðun Rétturinn til heilnæms umhverfis vs bæjaryfirvöld Hafnarfjarðar Björg Sveinsdóttir skrifar
Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun