Handbolti

Jóhann Gunnar: Frábær byrjun á tímabilinu

Stefán Árni Pálsson skrifar
„Þetta var frábær sigur á mjög erfiðum útivelli,“ sagði Jóhann Gunnar Einarsson, leikmaður Fram, eftir sigurinn.

Fram bar sigur úr býtum gegn Haukum 23-22 á útivelli í dag, en liðið hefur unnið bæði Hafnafjarðarliðin það sem af er mótsins.

„Við erum með fullt hús stiga eftir tvö erfiða útileik og það er erfitt að biðja um betri byrjun. Vörnin var geðveik í seinni hálfleiknum og Magnús var að verja frábærlega í markinu fyrir aftan okkur“.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×