Baldur: Vöknuðu af værum blundi Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 26. ágúst 2011 08:48 Stjarnan verður líklega með í N1-deild kvenna í vetur. Mynd/Pjetur
Allt útlit er fyrir að kvennalið Stjörnunnar í handknattleik verði með í N1-deild kvenna í vetur. Formaður og varaformaður handknattleiksdeildar félagsins sögðu af sér í gær. Þetta segir Baldur Ó. Svavarsson, fráfarandi formaður deildarinnar, í samtali við Vísi. Hann, ásamt stjórn deildarinnar, sendi frá sér yfirlýsingu í fyrradag þar sem því er lýst yfir að Stjarnan muni draga lið sitt úr keppni í N1-deild kvenna. „Þetta vakti menn af værum blundi hér í bænum," sagði Baldur. „Maður leikur sér þó ekki að því að gera svona lagað. Og þetta var ekki gert í þeim tilgangi að vekja menn til lífsins. En þetta varð engu að síður til þess að stuðningsmenn, aðalstjórn félagsins og stjórnmálamenn tóku við sér. Menn voru á fundum og í símum í allan gærdag," segir hann og rekur nú atburði gærdagsins.Sendum boltann yfir á aðalstjórnina „Aðalstjórn Stjörnunnar fundaði með bæjarstjórninni í gær, allavega formaðurinn. Síðan voru hringingar og fundir allan daginn. Við í stjörn handknattleiksdeildarinnar funduðum klukan 17.30 og fórum yfir stöðuna. Á sama tíma fundaði aðalstjórn félagsins." „Stuttu síðar vorum við, ég og varaformaðurinn Ragnheiður Traustadóttir, beðin um að mæta á fund til aðalstjórnar. Þar skiluðum við inn umboði okkar sem stjórnarmenn og gáfum boltann yfir til aðalstjórnar." „Aðalstjórnin setti svo saman bráðabirgðastjórn og tók varaformaðurinn, Sigurður Bjarnason, tímabundið við formennsku í handknattleiksdeild. Við fórum svo á fund með þeim og leikmönnum í Mýrinni þar sem þetta var tilkynnt." „Svo hófst umræða um hvort starfið ætti að halda áfram og hvort liðið ætti að keppa í vetur. Það var mikill vilji til þess, þó svo að skýr niðurstaða hafi ekki fengist. En ég tel að það sé yfirlýsing væntanleg þess efnis í dag." „En það er alveg ljóst að nú er búið að berja í brestina og menn voru einhuga um að láta þetta ekki fara svona. Það verður því spilað í vetur."Var algert neyðarúrræði Hann segir að það hafi ekki verið tilgangurinn að nota fjölmiðla til að vekja athygli á stöðu kvennaliðs Stjörnunnar. Það hafi hins vegar skilað sínu en um algert neyðarúrræði hafi verið að ræða. „Við vildum að þetta kæmi skýrt fram. Að það yrði ekki pískrað um þetta. Að það yrði ekki farið í felur með þetta - enda væri þetta það alvarlegt mál. Viðbrögðin yrðu að vera snör. Leikmennirnir þurfa sinn undirbúning áður en tímabilið hefst og það var einfaldlega ekki lengur hægt að sitja endalausa fundi og bíða. Það verður að taka ákvörðun."Töluðum lengi fyrir daufum eyrum Baldur segir að bæði hann og þeir sem sitja í meistaraflokksráði kvenna hafi talað fyrir daufum eyrum lengi - bæði gagnvart aðalstjórninni og bæjaryfirvöldum. „Þeir og við höfum gert þessum aðilum ítrekað grein fyrir því að þessi niðurskurður á afreksstarfinu sem hefur átt sér stað hefur gert líf okkar mjög erfitt. Og í raun eru þeir í meistaraflokksráði ósáttir við þessi málalok." „Þeir eiga eflaust eftir að láta í sér heyra. Þeir vilja að það sé tekin skýrari afstaða til þessa máls. Þetta eru afar metnaðarfullir menn sem eiga ekki síst stóran þátt í þeim árangri sem hefur náðst á undanförnum árum. Þeir vilja að enn meiri peningur verði sett í þetta afreksstarf - að það verði settur sá peningur í sem reksturinn kostar. Þeir vilja ekki halda úti miðlungsliði enda er metnaður þeirra meiri en svo."Vilji leikmanna skiptir öllu máli Nú hefur verið skipt út formanni í meistaraflokksráði kvenna og reyndar karla líka, segir Baldur. En hann segir að það sem mestu hafi skipt í öllu þessu er vilji leikmanna til að halda áfram. „Lykilleikmenn gáfu það út að þeir myndu vera áfram. Það er það sem er algjört lykilatriði. Þetta er fyrst og fremst spurningin um hvað þær vilja. Og þær voru tilbúnir að láta á þetta reyna." Florentina Stanciu, markvörður, gekk til liðs við ÍBV fyrir skömmu og átti það stóran þátt í því að ákveðið var í fyrradag að hætta öllu saman. „Nú er verið að leita að markverði og öðrum leikmönnum reyndar líka. Það vantar enn leikmenn til að vera með fullan varamannabekk." „En það voru allir sammála um að láta reyna á þetta og spila. Það var einhugur um það."
Olís-deild kvenna Mest lesið Öryggisgæsla landsliðsins aukin og engir sénsar teknir Fótbolti Vonn þakkar lækni fyrir að vera enn með tvo fætur Sport Var rekinn en hefndi sín: „Hefði verið búið að berja hann í spað“ Körfubolti Carrick er enn ósigraður og Sesko aftur hetjan Enski boltinn Landsleikur Íslands í Mexíkó í hættu? Fótbolti Dramatískt flautumark tryggði Liverpool mikilvægan sigur Enski boltinn Í hefndarhug til Íslands eftir „fíaskóið“ á EM Handbolti Ofbeldisfulli pabbinn fær að mæta á mót en synirnir verða ekki þar Sport Búin í aðgerð og ber sig vel eftir að hafa fengið skauta í augað Sport „Hann var farþegi í þessum leik“ Enski boltinn Fleiri fréttir Í hefndarhug til Íslands eftir „fíaskóið“ á EM KA hafði betur gegn ÍBV í spennutrylli á Akureyri Auðvelt hjá Magdeburg og Íslendingar áberandi Benedikt ekki brotinn en frá næstu vikurnar „Mín mistök að hafa ekki komið Bjögga betur inn í mótið“ Þorsteinn Leó með fjögur í fjórða sigri Porto í röð Púðurskot hjá Viggó og áfram gengur ekkert hjá Göppingen Þórsarar upp úr fallsæti Valskonur völtuðu yfir Stjörnuna Uppgjör: Fram - ÍR 26-34 | Öruggur og mikilvægur sigur ÍR Eyjakonur höfðu betur í Suðurlandsslagnum Slær niður veggi í HSÍ eftir viðburðaríkan fyrsta mánuð í starfi Snorri beið spenntur eftir ræðu Dags og er sammála honum Viktor Gísli með 48 prósent markvörslu í stórsigri Valsmenn með þriggja stiga forskot á toppnum eftir stórsigur Framarar safna áfram sigrunum eftir Evrópuflakkið Óli P. Ólsen er látinn Burðarás snýr aftur norður en bíður fyrst eftir barni Grínaðist í Antoni: „Við erum báðir rauðhærðir“ „Ekki endilega eitthvað sem ég þarf að upplifa aftur“ Uppgjör: Haukar - FH 25-32| Haukar létu valta yfir sig á heimavelli Mosfellingar enduðu taphrinuna og Haukakonur unnu fyrir norðan Sigurganga stráka Guðjóns Vals heldur áfram en tap hjá Bjarka Díana í lokaprófi og missir af mikilvægum landsleik Ómar Ingi markahæstur þegar Magdeburg tryggði sig inn í átta liða úrslit Elín Klara lék best allra á vellinum Viktor Gísli fagnaði sigri og sæti í átta liða úrslitunum Sara Dögg tekin inn í hópinn fyrir næstu leiki í undankeppni EM Reynir markahæstur í Íslendingaslagnum Fjórða tapið í röð hjá lærisveinum Arnórs Sjá meira