Fjórir menn handteknir í tengslum við húsleit Jón Hákon Halldórsson skrifar 31. maí 2011 17:02 Ólafur Þór Hauksson sérstakur saksóknari
Fjórir menn voru handteknir í tengslum við rannsókn sérstaks saksóknara á lánveitingum VÍS í dag. Samkvæmt heimildum fréttastofu eru þetta Lýður Guðmundsson, sem var aðaleigandi Exista, Erlendur Hjaltason, annar forstjóra Exista, og Guðmundur Örn Gunnarsson sem hefur verið forstjóri VÍS. Hann lét af starfi nýlega. Húsleit var jafnframt gerð hjá VÍS og Existu í dag vegna málsins. Samkvæmt tilkynningu frá sérstökum saksóknara hófust yfirheyrslur í morgun og er þess að vænta að þær standi fram á kvöld. Í tilkynningu frá sérstökum saksóknara segir meðal annars að til rannsóknar sé fjöldi lánveitinga til ýmissa félaga og aðila á árunum 2007-2009. Grunur sé um meint brot á auðgunarbrotakafla hegningarlaga í tengslum við ráðstafanir á fjármunum vátryggingafélagsins og brot á lögum um vátryggingastarfsemi. Um sé að tefla verulega fjárhagslega hagsmuni og rannsóknin tengist fjölda tilvika. Málinu var vísað til embættis sérstaks saksóknara með kæru frá Fjármálaeftirlitinu. Embætti sérstaks saksóknara gefur ekki frekari upplýsingar um rannsóknina að svo stöddu. ------------------------ Breyting klukkan 21:23 Í þessari frétt í dag var fullyrt að Sigurður Valtýsson hefði verið handtekinn. Það er ekki rétt og er Sigurður beðinn afsökunar á þeirri missögn.
Mest lesið Tveir leigubílstjórar sviptir ökuréttindum við Keflavíkurflugvöll Innlent Fjórir karlmenn stálu Labubu í tugatali Erlent Bláa lónið varar ferðamenn við óprúttnum leigubílstjórum Innlent Furðar sig á viðvaningshætti í Washington og segir fundinn óþarfan Erlent Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Erlent Sjaldan fleiri mótmælt ríkisstjórninni Erlent Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Innlent Íhugar að bjóða Selenskí eftir allt saman Erlent „Eins og það væri verið að segja mér að ég ætti tvo mánuði eftir ólifað“ Innlent Tveir á sjúkrahús eftir rafskútuslys Innlent Fleiri fréttir „Eins og það væri verið að segja mér að ég ætti tvo mánuði eftir ólifað“ Tveir á sjúkrahús eftir rafskútuslys Missir mikilvægrar meðferðar, óánægja í Ísrael og sundkappinn sem tefst Leiðtogar Norðurlanda og Eystrasaltsins: Engin friður án aðkomu Úkraínu“ Einn handtekinn vegna gruns um íkveikju Ný Miðgarðakirkja vígð í Grímsey Dvalarleyfiskerfið „handónýtt“: Erlent verkafólk leiti í vændi til að ná endum saman Átta utanríkisráðherrar fordæma hernámið á Gasa Mikill eldur í gömlu timburhúsi á Skaganum Tveir leigubílstjórar sviptir ökuréttindum við Keflavíkurflugvöll Viðvaningsháttur Trump-liða, próflausir leigubílstjórar og vel heppnuð ganga Bláa lónið varar ferðamenn við óprúttnum leigubílstjórum Deilt um ESB og Sólveig Anna ræðir útlendingafrumvarp Níu gistu fangageymslur í nótt Sendiherra á Íslandi á grundvelli misskilnings Pallaball fram á rauðanótt: „Farðu og finndu fólkið þitt!“ Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Vond staða Úkraínu, furðukenning um geimverur og Gleðigangan Taka þurfi ráðgjöf Hafró til endurskoðunar Alelda bíll á Emstruleið Vond niðurstaða Úkraínu, ásakanir á hendur sáttasemjara og síðasta hlaupið Mikill meirihluti hefur áhyggjur af stríðsátökum Rannsaka ásakanir á hendur ríkissáttasemjara Samdráttur og vítahringur í boði stjórnvalda Ekki stafi lengur tilvistarógn af Hamasliðum Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Féll fjóra metra í vinnuslysi í Kópavogi Ómeðvitaðir ferðamenn í Reynisfjöru, síbökuð hjón og tölvuspil fram á nótt Enginn árangur af „veiða og sleppa“ aðferðinni Sjá meira