Viðskipti innlent

ESA samþykkir tímabundið ríkisaðstoð við Byr hf.

Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) ákvað í dag að samþykkja tímabundið ríkisaðstoð til stuðnings við Byr hf. ESA óskar eftir því að íslensk stjórnvöld leggi fram innan sex mánaða áætlun um endur-skipulagningu nýja Byrs eða slit þess félags. Það er ekki fyrr en slík áætlun liggur fyrir sem ESA getur tekið endanlega afstöðu til ríkisaðstoðarinnar.

Þetta kemur fram í tilkynningu sem birt hefur verið á heimasíðu ESA. Tilkynningin að öðru leyti hljóðar svo:

“Starfsemi Byrs felst í fjármálaþjónustu við einstaklinga og fyrirtæki á íslenskum markaði og er fyrirtækið nú fjórði stærsti banki á Íslandi á þessu sviði.

Í kjölfar yfirtöku Fjármálaeftirlitsins (FME) á Byr sparisjóði (gamla Byr) í apríl 2010 stofnaði íslenska ríkið Byr hf. (nýja Byr), sem er hlutafélag að fullu í eigu ríkissjóðs. Hefur nýi Byr tekið yfir allar eignir, vissar skuldir og starfsemi gamla Byrs, sem er í slitameðferð.

Ríkisaðstoðin felst einkum í 900 milljóna króna hlutafjárframlagi ríkissjóðs til stofnunar Byrs hf. og samningi um víkjandi lán sem getur numið allt að 5 milljörðum króna. Með þessum ráðstöfunum er nýja Byr gert kleift að uppfylla kröfur FME um 16% eiginfjárhlutfall.

Ríkisaðstoðin auðveldar endurfjármögnun nýja Byrs og uppgjör á kröfum milli gamla og nýja bankans, sem leiðir að lokum til þess að kröfuhafar í gamla Byr eignast um 95% hlutafjár í nýja Byr, en hlutur ríkisins verður um 5%. Markmið aðstoðarinnar er að viðhalda tiltrú á íslenskt fjármálakerfi, en líklegt er að hrun nýja Byrs hefði orðið alvarlegt áfall, einkum fyrir innlánaeigendur á Íslandi.

Við núverandi aðstæður getur Byr ekki mætt fjárþörf sinni á fjármálamörkuðum. Að mati ESA eru ráðstafanirnar viðeigandi og í samræmi við aðsteðjandi vanda, þar sem þær gera nýja Byr kleift að uppfylla lögbundnar eiginfjárkröfur jafnframt því að undirbúa áætlun um endurskipulag á rekstri sem miðar að því að tryggja arðbæran rekstur til frambúðar.

Það dregur úr hugsanlegum neikvæðum áhrifum aðgerðanna á samkeppni að eigendur að gamla Byr hafa að fullu tapað stofnfé sínu og verður ekki bætt það tap. Kröfur lánadrottna gamla Byrs hafa jafnframt verið færðar niður.”






Fleiri fréttir

Sjá meira


×