ESA samþykkir tímabundið ríkisaðstoð við Byr hf. 13. apríl 2011 14:06
Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) ákvað í dag að samþykkja tímabundið ríkisaðstoð til stuðnings við Byr hf. ESA óskar eftir því að íslensk stjórnvöld leggi fram innan sex mánaða áætlun um endur-skipulagningu nýja Byrs eða slit þess félags. Það er ekki fyrr en slík áætlun liggur fyrir sem ESA getur tekið endanlega afstöðu til ríkisaðstoðarinnar. Þetta kemur fram í tilkynningu sem birt hefur verið á heimasíðu ESA. Tilkynningin að öðru leyti hljóðar svo: “Starfsemi Byrs felst í fjármálaþjónustu við einstaklinga og fyrirtæki á íslenskum markaði og er fyrirtækið nú fjórði stærsti banki á Íslandi á þessu sviði. Í kjölfar yfirtöku Fjármálaeftirlitsins (FME) á Byr sparisjóði (gamla Byr) í apríl 2010 stofnaði íslenska ríkið Byr hf. (nýja Byr), sem er hlutafélag að fullu í eigu ríkissjóðs. Hefur nýi Byr tekið yfir allar eignir, vissar skuldir og starfsemi gamla Byrs, sem er í slitameðferð. Ríkisaðstoðin felst einkum í 900 milljóna króna hlutafjárframlagi ríkissjóðs til stofnunar Byrs hf. og samningi um víkjandi lán sem getur numið allt að 5 milljörðum króna. Með þessum ráðstöfunum er nýja Byr gert kleift að uppfylla kröfur FME um 16% eiginfjárhlutfall. Ríkisaðstoðin auðveldar endurfjármögnun nýja Byrs og uppgjör á kröfum milli gamla og nýja bankans, sem leiðir að lokum til þess að kröfuhafar í gamla Byr eignast um 95% hlutafjár í nýja Byr, en hlutur ríkisins verður um 5%. Markmið aðstoðarinnar er að viðhalda tiltrú á íslenskt fjármálakerfi, en líklegt er að hrun nýja Byrs hefði orðið alvarlegt áfall, einkum fyrir innlánaeigendur á Íslandi. Við núverandi aðstæður getur Byr ekki mætt fjárþörf sinni á fjármálamörkuðum. Að mati ESA eru ráðstafanirnar viðeigandi og í samræmi við aðsteðjandi vanda, þar sem þær gera nýja Byr kleift að uppfylla lögbundnar eiginfjárkröfur jafnframt því að undirbúa áætlun um endurskipulag á rekstri sem miðar að því að tryggja arðbæran rekstur til frambúðar. Það dregur úr hugsanlegum neikvæðum áhrifum aðgerðanna á samkeppni að eigendur að gamla Byr hafa að fullu tapað stofnfé sínu og verður ekki bætt það tap. Kröfur lánadrottna gamla Byrs hafa jafnframt verið færðar niður.”
Mest lesið B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Atvinnulíf Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Viðskipti innlent Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Fleiri fréttir B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Sjá meira