Viðskipti innlent

Erlendir stjórnarmenn einfaldlega dýrari en þeir innlendu

Arion banki
Arion banki
„Ástæðan er einfaldlega sú að erlendir stjórnarmenn eru dýrari en þeir innlendu,“ segir Reynir Karlsson, stjórnarformaður Kaupskila ehf., sem er eignarhaldsfélag Kaupþings og fer með eignarhald á hlut Kaupþings hf. í Arion banka.

Laun erlendu stjórnarmannanna hækkaði um helming. Þannig fær stjórnarformaður Arion Banka, Monica Caneman, 1,4 milljónir á mánuði í staðinn fyrir tæpar 700 þúsund krónur eins og áður var.

Ástæðan fyrir þessu að sögn Reynis er einfaldlega sú að eigendum bankans þykir mikilvægt að hafa erlenda stjórnarmenn í stjórn bankans til þess að endurvinna traust hans á erlendum grunni.

Aftur á móti sé veruleiki erlendra stjórnarmanna frábrugðin þeirra íslensku, og launin mun hærri. Reynir segir það því samkeppnisatriði að geta boðið góð laun fyrir stjórnarsetuna fyrst sú ákvörðun hefur verið tekin að skipa stjórn bankans með erlendum stjórnarmönnum.

„Við þetta má bæta að það voru tveir stjórnarmenn sem hættu hjá okkur og þeir gáfu meðal annars upp þá ástæðu að launakjörin væru óviðunandi,“ segir Reynir sem segir launahækkunina í raun viðbragð til þess að halda í gott fólk sem hefur það að atvinnu að sitja í stjórnum fyrirtækja.

„En auðvitað bjóst ég við þessari umræðu. Ég tek undir það að þetta er ekki gott miðað við þann farveg sem umræðan er í,“ segir Reynir en bankinn var harðlega gagnrýndur fyrir að hækka laun bankastjóra Arion banka og stjórnar umtalsvert á síðasta ári.

Sjálfur segir Reynir að ákvörðunin um að hækka laun stjórnarinnar sé í raun lágt gjald til framtíðar fyrir bankann.


Tengdar fréttir

Laun erlendra stjórnarmanna tvöfölduð

Eigendur Arion banka samþykkti að tvöfalda laun erlendra stjórnarmanna á síðasta aðalfundi bankans. Önnur laun standa í stað. Þetta fékkst staðfest hjá upplýsingafulltrúa Arion banka.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×