Ísland með ódýrustu póstþjónustuna á Norðurlöndum 29. mars 2011 08:18
Miðað við nágrannalöndin er Ísland langódýrast í póstþjónustu en miklar verðhækkanir hafa átt sér stað undanfarið til dæmis á Norðurlöndunum. Hvað varðar Evrópusambandið er Ísland fjórða ódýrasta landið í póstþjónustu af 31 löndum. Í tilkynningu frá Íslandspósti segir að Post Danmark hefur tilkynnt um allt að 45% hækkun á almennum bréfum en sú breyting mun taka gildi 1.apríl næstkomandi, en almennt bréf kostar í dag 120 krónur en til samanburðar kostar sama þjónusta á Íslandi 75 krónur. Rök Post Danmark fyrir þessari verðhækkun eru þau að bréfamagn hefur dregist verulega saman síðasliðin ár, eða um 20% meðal annars vegna aukinnar rafrænnar notkunar. Þetta eru sömu aðstæður sem Íslandspóstur þarf að takast á við hér á landi. Á Íslandi hefur bréfamagn dregist saman um 25% síðustu þrjú ár í kjölfar þrenginga í efnahagsumhverfi og aukinnar rafrænnar þróunar. Einnig hækkaði Norgegur 1. Janúar 2011 almennan bréfapóst í 288 krónur en Posten Norden er að glíma við svipaðar aðstæður og eru hér á landi með póstdreifingu í mjög dreifðri byggð. Skýrsla sem gerð var fyrir Evrópusambandið, sýnir fram á að Ísland er mjög ódýrt í póstþjónustu í samanburði við önnur lönd. En Ísland er t.d. fjórða ódýrasta landið af þeim 31 löndum sem miðað er við í skýrslunni í 20 gramma verðflokki bréfa og í 1 kílógramma pökkum er Ísland með þeim ódýrustu í Evrópu. Skýrslan sýndi fram á að mjög mikill verðmunur er á póstþjónustu í Evrópu og miklar hækkanir hafa átt sér stað á árunum 2005 til 2009. Tekið var tillit til kaupmáttar í hverju landi fyrir sig og sýnir því skýrslan raunhæfan samanburð. Póstþjónusta í Slóvakíu er dýrust í verðflokki bréfa en á eftir koma Lettland, Noregur og Finnland. Þau lönd sem voru ódýrust í verðflokki bréfa voru Malta, Slóvenía, Kýpur og Ísland. Ef Norðurlöndin eru eingöngu tekin til samanburðar er Ísland einnig ódýrast í bréfasendingum. Ísland, Danmörk og Finnland eru með einn verðflokk eða frá 0-50 grömm en aftur á móti er Noregur og Svíþjóð með tvo verðflokka.
Mest lesið Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Viðskipti innlent Bæta við sex nýjum Airbus-vélum Viðskipti innlent Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Viðskipti innlent María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Viðskipti innlent Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Viðskipti innlent Fyrsta apótek Víkur opnað Viðskipti innlent Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Neytendur Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Viðskipti innlent Blöskraði dekkjaverð á Íslandi og sparaði sér á þriðja hundrað þúsund Viðskipti innlent Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Viðskipti innlent Fleiri fréttir Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Sjá meira