Íslendingurinn leitaði sér hjálpar vegna ásóknar í barnaklám Karen D. Kjartansdóttir skrifar 16. mars 2011 19:15
230 börnum, sem sættu kynferðislegri misnotkun, var bjargaði í einni stærstu lögregluaðgerð gegn barnaníðingum í heiminum. Aðgerðinni var stjórnað af Europol og teygði anga sína til fjölda landa en meðal annars var Íslendingur handtekinn. Aðgerðin bar heitið „Operation rescue" eða Björgunaraðgerðin og hefur hún staðið yfir í hálft annað ár. Hún náði til þrettán landa, þar á meðal Íslands. Björgvin Björgvinsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir börnin hafa verið á aldrinum tveggja ára til fjórtán ára. Kynferðisbrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu bárust gögn um málið síðasta sumar. Í gögnunum fannst íslensk IP-tala sem rakin var til manns sem fæddur er árið 1982 og er búsettur er á höfuðborgarsvæðinu. Sá var handtekinn og húsleit gerð hjá honum. Í tölvu hans fundust myndir sem sýndu barnaníð og auk þess hafði hann tekið þátt í spjalli á netinu sem tileinkað var kynferðislegu ofbeldi á börnum. Maðurinn hlaut dóm árið 2006 fyrir svipuð brot og hefur leitað sér aðstoðar vegna þessa en hún virðist ekki hafa dugað til. Spurður hvort þörf sé á að auka eftirlit með mönnum sem hafa verið dæmdir fyrir brot gegn börnum segir Björgvin að það sé skoðun allra þeirra lögreglumanna sem hafi komið að málum sem þessum. Í tilkynningu frá Europol segir að vonast sé til þess að hægt verði að bjarga fleiri börnum á næstu vikum. Björgvin segir afar gleðilegt að geta fengið að vera viðriðin björgun barna sem sæta ofbeldi sem þessu en það taki engu að síður mjög á. „Það er alveg ljóst að við vorum mjög glaðir að taka þátt í þessari rannsókn, eða björgun eins og þessi rannsókn er kölluð. Hún er engu að síður erfið fyrir þá sem koma að henni en við erum svo heppin að við getum leitað til stuðningsaðila eins og oft og við teljum þörf á, þannig við fáum stuðning sem ekki veitir af." Björgvin segir að lögregla og stjórnmálamenn verði að gera sér grein fyrir að Ísland sé ekki eyland í þessum málum. Brot sem þessi séu angi alþjóðlegra glæpa sem við verðum að horfast í augu við og taka á með viðeigandi hætti. Ekkert bendi til þess að íslensk börn hafi verið misnotuð í þessu máli. „En það væri ábyrgðarlaust að segja að slík mál muni aldrei nokkur tímann koma upp. Það væri bara bjartsýni að halda því fram að svo verði ekki," segir Björgvin. Alls hafa 184 grunaðir menn verið handteknir af lögregluyfirvöldum í þrettán löndum. Rannsóknin hefur auk þess beint sjónum lögreglu að tæplega 700 manns sem liggja undir grun um kynferðislega misnotkun á börnum víða um heim og bíða margir þeirra ákæru.
Mest lesið Úlfar hættir sem lögreglustjóri Innlent Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Innlent Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Innlent Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Innlent Dr. Bjarni er látinn Innlent Geyma fjöldann allan af fullum bensínkútum í bíl í Hlíðunum Innlent Rannsóknarleyfi Rastar hafnað Innlent Þakkantinum var haldið saman með kústskafti Innlent Lýsa martraðakenndri leigubílaferð upp í Bláfjöll Innlent Nú má heita Gúníta Ljósynja Dawn Innlent Fleiri fréttir Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Máttu skikka nemanda í tvö sjúkrapróf samdægurs Njósnari sér að sér og synt í kring um Ísland Vill deila þekkingu á jarðvarma með Úkraínu Bað forseta að taka „stjórnarliða á skólabekk og tukta þá til“ Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Blindir vilja Hljóðbókasafnið heim Stjórnarandstaða kvartar undan starfi í velferðarnefnd Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Úlfar hættir sem lögreglustjóri Ráðherra hafnaði loftslagsrannsókn vegna ófullnægjandi lagaramma Hafnar því alfarið að hafa lekið gögnunum Nú má heita Gúníta Ljósynja Dawn Fólk varað við aukinni hættu á gróðureld Sala á Íslandsbankabréfum hafin og Jón Óttar sakar Ólaf Þór um leka Rannsóknarleyfi Rastar hafnað Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Miðhúsabraut lokuð eftir að ekið var á vegfaranda á hlaupahjóli Yfir þrjú hunduð eftirskjálftar Mál Oscars sé barnaverndarmál en ekki útlendingamál Bein útsending: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Vara við aukinni hættu á gróðureldum á Austurlandi Stór skjálfti rétt hjá Grímsey Þakkantinum var haldið saman með kústskafti Dr. Bjarni er látinn Kristrún á leiðtogafundi um varnarmál: Þjóðirnar í Norður-Atlantshafi þurfi að sýna forystu Lögreglan á Austurlandi tók þátt í stórri alþjóðlegri lögregluaðgerð Lýsa martraðakenndri leigubílaferð upp í Bláfjöll Sjá meira