Börðust gegn því að gögnin frá Lúx yrðu afhent 3. mars 2011 12:06
Hreiðar Már Sigurðsson, Sigurður Einarsson og fyrrverandi hluthafar Kaupþings banka börðust gegn því að sérstakur saksóknari fengi lykilgögn frá Banque Havilland í Lúxemborg, en gögnin hafa nú verið afhent. Það tók embætti sérstaks saksóknara um ár að fá gögn sem aflað var í húsleit í Banque Havilland bankanum í Lúxemborg, sem áður var Kaupþing í Lúxemborg, send til Íslands. Embættið fékk um 150 kíló af skjölum auk rafrænna gagna afhent um miðjan febrúar eftir að Hæstiréttur í Lúxemborg hafði úrskurðað að afhenda ætti gögnin. Tafir á afhendingu gagnanna var að tólf aðilar kærðu afhendingu gagnanna, en lengi hefur leikið grunur á að á bakvið þau félög sem kærðu afhendingu hafi verið aðilar tengdir fyrrum stjórnendum og eigendum Kaupþings banka. Viðskiptablaðið greinir frá því í dag að þeir sem mótmæltu afhendingu hafi einmitt verið Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri, Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður, Ólafur Ólafsson, sem var annar stærsti hluthafi bankans og aðrir stórir viðskiptavinir bankans eins og Skúli Þorvaldsson, Egill Ágústsson og Einar Bjarni Sigurðsson. Fram kemur í Viðskiptablaðinu að gögnin hafi verið haldlögð í húsakynnum Banque Havilland, Pillar Securitisation, sem er þrotabú Kaupþings í Lúxemborg og heima hjá og í bíl Magnúsar Guðmundssonar, fyrrverandi forstjóra Banque Havilland. Talið er að gögnin hafi verulega þýðingu fyrir rannsókn embættis sérstaks saksóknara á málefnum Kaupþings, en fyrrverandi stjórnendur bankans er grunaðir um markaðsmisnotkun og ýmis auðgunarbrot.
Mest lesið Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Viðskipti innlent Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Viðskipti innlent Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Viðskipti innlent Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Viðskipti innlent María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Viðskipti innlent Bæta við sex nýjum Airbus-vélum Viðskipti innlent Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Neytendur Björn Berg svarar lesendum: Eyðir alltaf neyðarsjóðnum í vitleysu Neytendur Ekki ýkja mörg hótelherbergi til skiptanna á landsbyggðinni Viðskipti innlent Þurfum að fara varlega í að halda að við séum best Atvinnulíf Fleiri fréttir Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Sjá meira