Sveitarfélög í milljarða ábyrgð fyrir Magma 16. ágúst 2010 12:08 Böðvar Jónsson.
HS veitur, sem eru í eigu sveitarfélaga á suð-vesturhorninu, eru í tíu milljarða króna ábyrgð, fyrir HS orku, sem er í einkaeigu. Böðvar Jónsson, formaður bæjarráðs Reykjanessbæjar, segir að æskilegt væri að losna við ábyrgðina. HS orka þurfi að greiða skuldirnar upp til að íbúar sveitarfélaganna losni undan ábyrgðunum, en Böðvar hefur ekki áhyggjur af því að ábyrgðin falli nokkurn tímann á íbúa sveitarfélaganna. Magma Energy Sweden á 98,5 prósenta hlut í HS orku. HS veitur, eru hins vegar að öllu leyti í opinberri eigu; að tveimur þriðju í eigu Reykjanesbæjar. Orkuveita Reykjavíkur á sextán prósent og Hafnafjörður fimmtán. Grindavík og fleiri eiga minna. Enda þótt að tvö ár séu liðin frá því að Hitaveitu suðurnesja var skipt upp í HS Veitur og HS Orku, er enn sami forstjóri yfir báðum fyrirtækjum. Þá eru skrifstofur beggja á sama stað og Rúv hefur greint frá því að starfsmenn sinni verkefnum fyrir bæði félög. En það er fleira sem tengir félögin saman. Fram kemur í ársreikningi HS veitna fyrir síðasta ár, að félagið er í upp undir tíu milljarða króna ábyrgðum fyrir HS orku, félag Magma Energy. Þetta er í reikningnum skýrt með því að í lögum um hlutafélög sé kveðið á um að ef kröfuhafi í félagi, sem skipt hefur verið, fái ekki fullnustu kröfu sinnar hjá því félagi sem kröfuna skal greiða, það er HS orku, beri önnur þátttökufélög í skiptingunni, HS veitur, óskipta ábyrgð á skuldbindingum sem stofnast höfðu þegar upplýsingar um skiptingaráætlunina voru birtar.
Mest lesið Langþreytt á fasteignakeðjum sem slitna og ætlar aldrei aftur að flytja Viðskipti innlent Endurbyggja gömul hús úr miðbæ Reykjavíkur á Selfossi Viðskipti innlent Eftirlitið veður í Veðurstofuna Viðskipti innlent Arnar og Aron Elí til Reita Viðskipti innlent Vaxtaverkir í golfi: Kylfingum fjölgar um þúsundir á ári Atvinnulíf Ben kveður Jerry Viðskipti erlent Leitin skili tekjum í ríkissjóð þó það finnist ekki olía Viðskipti innlent Eldgosin við Grindavík höfðu mikil áhrif á neikvæða afkomu hins opinbera Viðskipti innlent „Gæti orðið til þess að þú sért látinn fara“ Neytendur Vara við díoxíni í Landnámseggjum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Endurbyggja gömul hús úr miðbæ Reykjavíkur á Selfossi Arnar og Aron Elí til Reita Eftirlitið veður í Veðurstofuna Eldgosin við Grindavík höfðu mikil áhrif á neikvæða afkomu hins opinbera Leitin skili tekjum í ríkissjóð þó það finnist ekki olía Langþreytt á fasteignakeðjum sem slitna og ætlar aldrei aftur að flytja Vara við díoxíni í Landnámseggjum Slá milljarða lán til að fjármagna jarð- og sæstrengi Laganemar bjóða leigjendum áfram upp á fría ráðgjöf Heiður Anna nýr framkvæmdastjóri FS Tekur við stöðu framkvæmdastjóra Landmarks fasteignamiðlunar Olíuleit geti skipt sköpum fyrir framtíð þjóðarinnar Edda Hermanns nýr forstjóri Lyfja og heilsu Djúpstæð vonbrigði þegar margra eigna keðjur slitna Andri Sævar og Svava til Daga Tveir nýir vörumerkjastjórar til Ölgerðarinnar Tekur við sem framkvæmdastjóri verkfræðisviðs Coripharma Ráðin framkvæmdastjóri markaðsstofu Travel Connect Birgir til Banana Spyr hvort tilefni sé til ánægju með sölu á Íslandsbanka Bætir við sig nýjum áfangastað á Ítalíu Loka verslun Útilífs í Smáralind Meðalsölutími fasteigna hundrað dagar Systurfélag ÞG verktaka kaupir Arnarland Play sé ekki að fara á hausinn Fór yfir breytingarnar sem verði ekki allar þægilegar fyrir starfsfólk Framkvæmdastjórar kveðja og sviðum stokkað upp Sammála um aukna verðbólgu í september Tekur við stöðu framkvæmdastjóra LÍS Kristín nýr framkvæmdastjóri Eflu Sjá meira