Greining: Össur hf. afléttir gjaldeyrishöftunum 2. nóvember 2010 13:52
Þetta er fyrisögnin á umfjöllun greiningar Arion banka um þá heimild sem Seðlabankinn hefur veitt íslenskum eigendum hlutabréfa í Össuri hf. að flytja bréf sín yfir í kauphöllina í Kaupmannahöfn og fá þau samhliða skráð í dönskum krónum. Í Markaðspunktum greiningarinnar segir: „Samkvæmt fréttatilkynningu stoðtækjafyrirtækisins Össurar geta hluthafar nú flutt hlutabréfeign sína í fyrirtækinu af íslenska markaðnum yfir á þann danska, hafi þeir eignast bréfin fyrir 1. nóvember síðastliðinn. Í fréttatilkynningunni kemur fram að þessi heimild sé veitt af Seðlabanka Íslands. Ef rétt reynist vekur þó nokkra furðu að Seðlabankinn skuli veita slíka heimild án þess að hún sé kynnt opinberlega af bankanum með rökstuðningi - enda verið að gera ákveðnum hópi fjárfesta kleift að koma fjármunum sínum úr landi. Ef til vill væri hægt að líta á þetta sem einn lið í því ferli að afnema höftin en þá er það skrýtið að þessi heimild skuli aðeins eiga við Össur eitt fyrirtækja, en fjögur önnur félög eru með tvíhliða skráningu. BankNordik, Atlantic Petroleum og Atlantic Airways eru skráð í Kauphöllina hérna heima ásamt því að vera skráð í dönsku kauphöllina. Fjórða félagið er Century Aluminum en það er skráð hérna heima og einnig á Nasdaq. Athyglisvert verður að sjá hvort skráning annarra félaga í Kauphöllinni (sem eru tvískráð) fái í framhaldi sömu meðferð. Að öðrum kosti verður fróðlegt að sjá rökstuðning Seðlabankans fyrir því að gefa hluthöfum þessa einstaka fyrirtækis undanþágu frá fjármagnshöftunum en ekki öðrum. Samkvæmt núgildandi gjaldeyrisreglum er skilaskylda á þeim gjaldeyri sem innlendum aðilum áskotnast ef þeir ákveða að selja umrædd hlutabréf. Hinsvegar er innlendum fjárfestum heimilt að endurfjárfesta söluverðmætinu erlendis innan tveggja vikna. Að því gefnu að fjárfestar flytji bréf sín út að einhverju marki (sem verður að teljast líklegt), mun seljanleiki hlutabréfa í félaginu hérlendis verða minni en áður, þar sem færri hlutir standa eftir hérlendis. Fyrir innlenda fjárfesta ætti félagið því ekki að vera eins spennandi kostur og það var jafnvel áður - nema Seðlabankinn tilkynni svo síðar meir enn nýja dagsetningu fyrir hluthafa að færa bréf sín út. Sambærileg undanþága fyrir hin fjögur félögin sem hafa tvíhliða skráningu myndi draga enn frekar blóð úr markaðnum hér heima og er markaðurinn ekki blóðríkur fyrir. Það er erfitt annað en að setja sértæka undanþágu til handa hluthöfum Össurar í samband við þann vandræðagang er ríkir í boðskiptum Seðlabankans við markaðsaðila um afnám fjármagnshaftanna. En undanfarnar vikur hefur nokkuð skort á að talsmenn bankans séu samstíga og samkvæmir sjálfum sér í yfirlýsingum sínum. Sú trú hefur nú grafið sig djúpt hjá markaðsaðilum að í raun og veru sé engin áætlun til staðar um afnám gjaldeyrishaftanna en Seðlabankinn sé aðeins að fálma sig áfram."
Mest lesið Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Nathan Viðskipti innlent Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Viðskipti innlent Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Viðskipti innlent Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Viðskipti innlent Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp Viðskipti erlent Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Viðskipti innlent „Krakkarnir spyrja langmest“ – íslenskar fjölskyldur flykkjast á Lava Show Samstarf Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Viðskipti innlent Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Úr Símanum í rörin Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Icelandair grunar flugmenn um græsku Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Gengi Alvotech tekur kipp Alvotech stóðst úttekt FDA Sláandi hve mikið skattarnir hafi hækkað Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Sjá meira