Viðskipti innlent

500 punkta múrinn rofinn

Ísland er í sjöunda sæti yfir þau lönd sem mestar líkur eru á að geti ekki staðið við skuldbindingar sínar. Mynd/GVA
Ísland er í sjöunda sæti yfir þau lönd sem mestar líkur eru á að geti ekki staðið við skuldbindingar sínar. Mynd/GVA

Álag á skuldatryggingar ríkissjóðs hefur hækkað viðstöðulaust síðan á þriðjudag eftir að Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, ákvað að setja Icesave-lögin í hendur þjóðarinnar en við það færði matsfyrirtækið Fitch lánshæfi ríkissjóðs í ruslflokk. Álagið rauf 500 punkta múrinn fyrir hádegi í gær samkvæmt upplýsingum Credit Market Analysis og hefur það ekki verið hærra frá í fyrrasumar.

Til samanburðar stóð álagið í um 380 punktum í kringum síðustu áramót.

Miðað við þetta eru líkurnar á þjóðargjaldþroti nú rúmlega 29 prósent. Líkurnar á þroti Venesúela, sem trónir á toppnum með 945 punkta, eru 48,5 prósent.

- jab












Fleiri fréttir

Sjá meira


×