Stærsta tónlistarveisla sumarsins í Hljómskálagarðinum í kvöld Tinni Sveinsson skrifar 1. júlí 2010 15:26 Ungir sem aldnir eru hvattir til þess að leggja leið sína í Hljómskálagarðinn í kvöld.
Tónlistarunnendur sem ekki voru á leið austur fyrir fjall duttu í lukkupottinn í gær þegar tilkynnt var að tónlistarveisla Inspired by Iceland átaksins sem fara átti fram að Hamragörðum undir Eyjafjöllum í kvöld var færð til Reykjavíkur. Veðurfræðingar sögðu óvenju krappa lægð við suðurstrendur landsins gera það að verkum að ekki er ráðlegt að ráðast í tónleikahald á þessum slóðum. Þess í stað er hópur fólks við störf í Hljómskálagarðinum um þessar mundir að undirbúa tónleikana sem hefjast þar klukkan 20 í kvöld. Boðið verður upp á þriggja tíma tónlistarveislu en hún verður í beinni útsendingu á inspiredbyiceland.com. Vonast er til þess að fjöldi fólks út um allan heim stilli inn á síðuna og fylgist með. Sjá má glitta í undirbúninginn í beinni útsendingu úr vefmyndavél Inspired by Iceland sem horfir yfir Tjörnina. Tónleikarnir ganga undir nafninu Iceland Inspires og eru einn af hápunktum átaksins. Sjá má dagskrá tónleikanna hér að neðan. Við hana má síðan bæta mynd- og hljóðupptökum með Gus Gus, Hjaltalín, For a Minor Reflection og Retro Stefson. Þær voru teknar upp á nokkrum vel völdum stöðum í ísenskri náttúru og verða sendar út á heimasíðunni í kvöld. Þá hafa tónlistarmennirnir erlendu verið í góðu stuði í borginni síðustu daga. Glen Hansard, sem flestir ættu kannast við úr kvikmyndinni Commitments, tróð til að mynda upp á Kaffibarnum á vel heppnuðum leynitónleikum í gær og gripu Damien Rice og fleiri tónlistarmenn í hljóðfæri honum til aðstoðar.
Mest lesið Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Innlent Fleiri fréttir Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Sjá meira