Viðskipti innlent

Eignir tryggingafélaga jukust um 12,6 milljarða í janúar

Heildareignir tryggingafélaganna námu 147,2 milljarða kr. í lok janúar og hækkuðu um 12,6 milljarða kr. milli mánaða.

Þetta kemur fram í hagtölum Seðlabankans. Þar segir að meirihluti iðgjalda er bókfærður á fyrri hluta árs og fer þá á iðgjaldaskuld, sem skýrir þessa hækkun milli mánaða.

Önnur útlán hækkuðu um tæpa 5 milljarða kr. og aðrar eignir hækkuðu um tæpa 6 milljarða kr. í mánuðinum, en mótbókun iðgjaldaskuldarinnar færist á þessa liði.

Tölur fyrir desember 2009 og janúar 2010 eru bráðabirgðatölur og geta breyst, að því er segir í hagtölunum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×