Mikill verðmunur á skólabókum 19. ágúst 2010 16:28 Mynd/GVA
Verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð á nýjum og notuðum skólabókum fyrir framhaldsskóla í verslunum á höfuðborgarsvæðinu í gær. Farið var í sex verslanir og skoðað verð á 27 algengum nýjum bókum. Einnig voru skoðaðir tíu titlar á fjórum skiptibókamörkuðum. Mikill munur reyndist á verði nýrra og notaðra námsbóka og var munurinn oftast um eða yfir 100%.Nýjar bækur oftast ódýrastar í Griffli Mál og menning við Laugveg var oftast með hæsta verðið á nýjum bókum eða á 17 titlum af 27 og Penninn-Eymundsson var með hæsta verðið á 15 titlum af 27. Griffill var oftast með lægsta verðið á nýjum bókum í þessari könnun en 15 titlar af 27 voru á besta verðinu hjá þeim. Á eftir þeim kemur Bóksala stúdenta þar sem 9 titlar af 27 voru ódýrastir, en þar er veittur 10% fastur afsláttur af íslenskum bókum sem reiknaður var inn í verðið.Notaðar bækur ódýrastar í Pennanum-Eymundsson Á skiptibókamörkuðunum leit þetta öðruvísi út. Penninn-Eymundsson var oftast með lægsta útsöluverðið, eða á átta titlum af tíu, en tekið er fram að þegar könnunin var gerð voru þeir með 20% afslátt á kassa af skiptibókum sem er reiknað inn í verðið. Office 1 var oftast með hæsta útsöluverðið á notuðum skólabókum eða á átta titlum af tíu. Verðmunur á milli skiptibókamarkaðanna var í flestum tilvikum um eða yfir 30%.Verð á algengum bókum breytist oft ört „Námsmenn ættu einnig að hafa hugfast að verð á algengum bókatitlum breytast oft ört hjá verslunum við upphaf skólaárs. Úrval notaðar bóka á skiptibókamörkuðum var mjög misjafnt eftir verslunum þegar könnunin var gerð en getur breyst með skömmum fyrirvara," segir á heimasíðu ASÍ. Kannað var verð í eftirtöldum verslunum: Máli og menningu Laugavegi, Bóksölu stúdenta Hringbraut, Pennanum-Eymundsson Hallarmúla, Office 1 Skeifunni, Griffli Skeifunni og Bókabúðinni Iðnú Brautarholti. Í öllum verslunum voru seldar nýjar bækur en notaðar bækur voru ekki seldar í Bóksölu stúdenta og Iðnú.
Mest lesið „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Viðskipti innlent Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Er blanda af Prins Valíant og Múmínálfinum Atvinnulíf Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Viðskipti innlent Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Sjá meira