Aðskilnaður trúfélaga og skóla ræddur í Hafnarfirði Valur Grettisson skrifar 3. nóvember 2010 15:41 Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, formaður fræðsluráðs í Hafnarfirði.
Lögð var fram tillaga um aðskilnað trúfélaga frá skólastarfsemi hjá fræðsluráði Hafnarfjarðar í dag. Samkvæmt formanni ráðsins, Guðrúnu Ágústu Guðmundsdóttur, oddvita Vinstri grænna, þá er tillagan eingöngu til umræðu. „Þetta var lagt fram og verður svo lagt undir skólasamfélagið auk þess sem það þarf að finna út hvernig þetta gengur fyrir sig innan skólanna í dag," segir Guðrún en ábendingin barst til ráðsins í gegnum íbúagáttina, það er að segja, íbúi sendi tillöguna inn með tölvupósti. „Tillagan kemur í kjölfar tilfinningaróts í Reykjavík," segir Guðrún en meirihluti mannréttindaráðs Reykjavíkurborgar hefur lagt fram tillögu þar sem lagt er til aðskilnað trúfélaga og skóla. Umræðan um tillögurnar hefur verið hörð enda tillögurnar vægast sagt umdeildar. Guðrún segir málið alls ekki komið í farveg í Hafnarfirði með öðrum hætti en að það sé til umræðu. Það væri þá ekki fyrr en á næsta fundi fræðsluráðs sem ákvörðun um framhald tillögunnar verður tekin. Aðspurð hvort það hafi verið kvartað undan trúfélögum í skólum í Hafnarfirði svarar Guðrún því til að engar formlegar kvartanir hafi borist. „Þetta er bara tekið fyrir í rólegheitum, enda er ég ekki fylgjandi neinni sprengjuumræðu," segir Guðrún að lokum. Næsti fundur fræðsluráðs verður haldinn eftir hálfan mánuð.
Mest lesið Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Ítalski baróninn á ekki vatnið Innlent Fleiri fréttir Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Sjá meira