Segja nýja borholu staðfesta orkulind á Reykjanesi 14. október 2010 18:43
Mælingar á nýrri borholu við Reykjanesvirkjum benda til að þar sé fundið nýtt gjöfult vinnslusvæði, að mati ráðamanna HS Orku, sem hyggjast strax eftir helgi ítreka ósk sína til Orkustofnunar um leyfi til að stækka virkjunina. Raforkan er ætluð álverinu í Helguvík. Stækkun Reykjanesvirkjunar um 50 megavött var hugsuð sem fyrsta verkefni HS Orku til að útvega raforku til álvers í Helguvík. Efasemdir sérfræðinga Orkustofnunar um að jarðhitasvæðið stæði undir frekari orkuvinnslu hafa komið í veg fyrir að virkjanaleyfi væri gefið út.Það sem gæti ráðið úrslitum um það hvort leyfi fáist til að stækka virkjunina er þessi borhola hér, sú nýjasta á Reykjanesi. Matið á henni gæti þannig haft afgerandi áhrif á þann kraft sem verður í efnahagsuppbygginu í landinu á næstunni.Holan er 2.300 metra djúp og er á svokallaðri Stamparein, nýju svæði sem HS Orka bindur miklar vonir við. Í byrjun mánaðarins var byrjað að láta holuna blása í fyrsta sinn til að kanna afl hennar en hitinn mælist 320 gráður.Albert Albertsson, aðstoðarforstjóri HS Orku, segir alveg ljóst að þetta sé háhitahola. Það sýni allar mælingar. Hann segir aðra holu við Sýrfell sýna 340 stiga hita. Þetta segi þeim í reynd að það sé einn stór hitahlemmur undir öllu þessu svæði og dregur þá ályktun að Stamparein sé gjöfult vinnslusvæði.Mælingum er ólokið á holunni og því vita menn ekki ennþá afl hennar. Albert segir það koma í ljós á næstu vikum hversu mikið afl hún gefur.Ráðamenn HS Orku telja hins vegar ekki eftir neinu að bíða og undirbúa nú ítrekun um virkjunarleyfi sem þeir ætla að senda Orkustofnun strax eftir helgi. Þeir segja að vissa sé komin fyrir því að næg orka sé til staðar fyrir stækkaða virkjun.
Mest lesið Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Innlent Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Innlent Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Innlent Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Innlent Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Erlent Finnur ekki fyrir sársauka Innlent Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Innlent Flekahreyfingar innan Samfylkingar Innlent Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa Innlent Rússnesk gervitungl trufla GPS-merki í Evrópu Erlent Fleiri fréttir Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Hermann Nökkvi verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð „Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Færa umferð af norður- á suðurakbraut á Breiðholtsbraut Mættu með stungusár á lögreglustöðina Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Ari þiggur stöðu stjórnarformanns „Staðreynd að matarkarfan mun lækka í verði“ NASA mun fylgjast með íslenska himinhvolfinu Sakar ráðherra um alræðistilburði í nafni mannréttinda „Ríkisstjórnin getur ekki flúið eigin vandræði inn í Evrópusambandið“ Í beinni: Eldhúsdagsumræður á Alþingi Sturlaugur nýr bæjarstjóri Akranessbæjar Evrópumet í verðhækkunum og vígbúnaðarkapphlaup Mál Steinu fer fyrir Hæstarétt Sofandi á akbraut Sjá meira