Gat á poka og blóðblettir í skotti komu upp um Gunnar Rúnar Breki Logason. skrifar 22. nóvember 2010 12:42 Gunnar Rúnar Sigurþórsson þegar hann kom til þingfestingar í Héraðsdómi Reykjaness á föstudaginn síðasta.
Gat á poka og blóðblettir í skotti á bifreið Gunnars Rúnar Sigurþórssonar virðast hafa komið upp um hann. Í játningu Gunnars kemur fram að hann ætlaði sér að komast upp með morðið. Yfirheyrslan yfir Gunnari sem fréttastofa hefur undir höndum, er tekin 7.september síðast liðinn, þremur dögum eftir að hann játaði fyrir lögreglu að hafa orðið Hannesi að bana. Í skýrslutökunni lýsir Gunnar aðdraganda morðsins nokkuð ítarlega. Þar segist Gunnar hafa byrjað að sanka að sér hlutum nokkrum mánuðum eftir að að fræg ástarjátning hans til kærustu Hannesar birtist á youtube í mars á síðasta ári. Hnífinn sem hann notaði við verknaðinn fékk hann í Húsasmiðjunni þar sem hann starfaði fyrir nokkrum árum, og stóra úlpu hafði móðir hans gefið honum. Um mitt ár 2009 keypt hann límbandsrúllu í Húsasmiðjunni og stal síðan poka af latexhönskum af vinnustað sínum, en hann starfaði hjá tölvufyrirtækinu Maritech í Borgartúni. Lambúshettu sem hann bar á sér við verknaðinn keypti hann síðan í verslun 66 gráður norður. Morðið var því þaulskipulagt en áður en Gunnar gekk að húsi Hannesar teipaði hann poka yfir skó sína, setti á sig lambúshettuna og fór í úlpuna. Á vettvangi fannst hinsvegar skófar eftir Gunnar, en svo virðist vera sem gat hafi komið á annan pokann í atganginum. Einnig fannst blóð í skotti á bifreið Gunnars, en dótið setti hann í skottið áður en hann fleygði því Hafnarfjarðarhöfn. Einnig kemur fram að Gunnar reyndi aldrei að þrífa bíl sinn eftir verknaðinn en á eftirlistmyndavélum við Hafnarfjarðarhöfn sést bill hans koma keyrandi, og Gunnar henda dótinu í höfnina. Bol og buxum sem hann var í henti hann síðan í ruslatunnu við verslun sem er skammt frá heimili hans. Aðalmeðferð í málinu fer fram 21.desember næstkomandi en fyrir þann tíma munu tveir geðlæknar framkvæma svokallað yfirmat á geðheilbrigði Gunnars. Fram hefur komið að í svokölluðu undirmati hafi geðlæknar komist að því að Gunnar sé ósakhæfur. Verði yfirmatið á sömu vegu og hið fyrra, eru yfignæfandi líkur á því að dómari muni meta Gunnar ósakhæfann í málinu. Ítarlega verður fjallað um játningu Gunnars í kvöldfréttum Stöðvar 2 og í Íslandi í dag, strax að loknum fréttum.
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Fleiri fréttir „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Sjá meira