Viðskipti innlent

Ríkissjóður þarf 230 milljarða í lánsfjármagni á árinu

Fjármögnunarþörf ríkissjóðs vegna rekstarhalla og endurfjármögnunar lána verður 230 milljarðar kr. á árinu 2010. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lánamálum ríkisins til kauphallarinnar

Áformað er að fjármagna 170 milljarða kr. með útgáfu innlendra markaðsskuldabréfa og með sölu yfirtekinna skuldabréfa í eigu ríkissjóðs fyrir 5 milljarða kr. Mismunurinn verður fjármagnaður með sölu ríkisvíxla fyrir 20 milljarða kr. og með innstæðum ríkissjóðs í Seðlabankanum fyrir um 30-40 milljarða kr.

Gefinn verður út nýr 2ja ára flokkur ríkisbréfa á fyrri hluta ársins. Gefinn verður út nýr 5-6 ára flokkur ríkisbréfa á seinni hluta ársins.

Útgáfa á nýjum 10-11 ára verðtryggðum skuldabréfaflokki fyrir 50 milljarða kr. Mánaðarlegri útgáfu á 4ra mánaða ríkisvíxlum verður haldið áfram.

Þá segir í tilkynningunni að ekkert erlent lán er á gjalddaga á árinu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×