Íbúðafjárfesting dróst saman um helming milli ára 21. janúar 2010 12:04
Íbúðafjárfesting dróst saman um helming milli áranna 2009 og 2008, það er milli fyrstu þriggja ársfjórðugna beggja ára. Þetta er mesti samdráttur á þessu sviði hérlendis frá því að byrjað var að reikna þróunina út á ársfjórðungsgrundvelli árið 1997. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að þessi þróun leiðir augljóslega til þess að arðsemi í byggingu íbúða fer lækkandi og þar með dregur verulega úr hvata til nýbygginga, eins og raunin hefur verið síðustu misseri. „Þannig hafði íbúðafjárfesting dregist saman um helming á fyrstu þremur fjórðungum síðastliðins árs samanborið við sama tímabil 2008. Er þetta mesti samdráttur í íbúðafjárfestingu sem mælst hefur frá því að byrjað var að taka saman þjóðhagsreikninga á ársfjórðungslegum grunni árið 1997," segir í Morgunkorninu. Á meðan hratt hefur dregið úr tólf mánaða hækkun vísitölu byggingarkostnaðar hefur verð á íbúðarhúsnæði farið lækkandi á sama tíma. Þannig hafði verð á íbúðarhúsnæði í desember síðastliðnum lækkað um 12% undangengna 12 mánuði m.v. vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sem Fasteignaskrá Íslands tekur saman. Jafnframt má reikna með að offramboð óseldra íbúða og ónýttra lóða komi til með að halda aftur af íbúðafjárfestingu um þó nokkurn tíma og telja má líklegt að íbúðabyggingar taki ekki að glæðast á ný fyrr en núverandi magn óseldra íbúða hefur minnkað verulega.
Mest lesið Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Viðskipti innlent Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Viðskipti innlent Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Atvinnulíf Voni að allir fái starfið aftur Viðskipti innlent Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Viðskipti innlent Ekki allir geta sagt: „Ég græddi fúlgur fyrir fyrirtækið í dag“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst María nýr stjórnarformaður SVEIT Sjá meira