Viðskipti innlent

Peningastefnunefnd telur áfram svigrúm til vaxtalækkanna

Peningastefnunefnd telur að eitthvert svigrúm sé enn til staðar til áframhaldandi slökunar peningalegs aðhalds, það er frekari vaxtalækkana, haldist gengi krónunnar stöðugt eða styrkist og hjaðni verðbólga eins og spáð er.

Þetta kemur fram í fundargerð nefndarinnar frá síðasta vaxtaákvörðunarfundi hennar. Fundargerðin er birt á vefsíðu Seðlabankans.

Peningastefnunefnd segir að áætlanir um afnám hafta á fjármagnshreyfingar skapa hins vegar óvissu um hversu mikið svigrúmið er til skemmri tíma.

Nefndin er reiðubúin til þess að breyta aðhaldi peningastefnunnar eins og nauðsynlegt er með hliðsjón af því tímabundna markmiði hennar að stuðla að gengisstöðugleika og í því skyni að tryggja að verðbólga verði nálægt markmiði til lengri tíma litið.

Nefndarmenn ræddu horfur um afnám gjaldeyrishafta og þýðingu þess fyrir peningastefnuna. Nefndarmenn ræddu einnig um hlutverk gengisstöðugleika sem tímabundins markmiðs peningastefnunnar. Nokkrir nefndarmenn voru þeirrar skoðunar að mikilvægi þess markmiðs færi smám saman þverrandi þar sem verðbólguhjöðnun héldi áfram og endurskipulagning innlendra efnahagsreikninga væri komin vel á veg. Aðrir töldu að veikara gengi krónu gæti leitt til aukinna launahækkana.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×