Frábær barátta dugði ekki gegn þeim frönsku - annað tækifæri á laugardag Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. maí 2010 20:58 Mynd/Stefán
Íslenska kvennalandsliðið þarf að bíða þar til á laugardaginn til þess að tryggja sér sögulegt sæti í lokakeppni EM eftir þriggja marka tap fyrir Frökkum, 24-27, í Laugardalshöllinni í kvöld. Íslensku stelpurnar gáfu allt sitt í leikinn og sýndu mikinn styrk með því að gefast ekki upp þegar á móti blés og franska liðið virtist vera að stinga af. Íslenska liðið skoraði fimm mörk í röð um miðjan seinni hálfleik og komst yfir í leiknum en tókst ekki að halda út á móti einu besta liði í heimi. Hanna Guðrún Stefánsdóttir spilaði frábærlega í kvöld þrátt fyrir að vera augljóslega sárþjáð og eiginlega á annarri löppinni. Hanna skoraði alls 13 mörk í leiknum og Rakel Dögg Bragadóttir kom henni næst með 3 mörk. Íslensku stelpunum nægði jafntefli í kvöld til þess að tryggja sér annað sætið en nú bíður liðsins útileikur í Austurríki þar sem liðin berjast um farseðilinn á EM sem fram fer í Danmörku og Noregi í desember. Ísland-Frakkland 24-27 (11-13) Mörk Íslands (skot): Hanna Guðrún Stefánsdóttir 13/6 (20/8), Rakel Dögg Bragadóttir 3 (6), Ásta Birna Gunnarsdóttir 2 (4), Hrafnhildur Skúladóttir 2 (7), Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 2 (3), Berglind Íris Hansdóttir 1 (1), Rut Arnfjörð Jónsdóttir 1(1), Rebekka Rut Skúladóttir (1), Sunna Jónsdóttir (1), Karen Knútsdóttir (3), Stella Sigurðardóttir (4).Varin skot: Berglind Íris Hansdóttir 11 (33/2, 33%), Íris Björk Símonardóttir 1(6, 17%).
Íslenski handboltinn Handbolti Mest lesið Slóst eftir leik og var rekinn út af: „Viðbrögðin í leikslok voru hræðileg“ Fótbolti Þekkt hnefaleikakona látin aðeins 26 ára gömul Sport Kevin Keegan látinn Enski boltinn Tove nýtti tímann sinn á Íslandi til hins ítrasta Sport Messi felldi tár í leikslok: „Enginn draumaendir“ Fótbolti Þrettán ára drengur lést í fagnaðarlátum á Spáni Fótbolti Gætu misst bæði Messi og landsliðsþjálfarann sinn Fótbolti Guardiola hafði rétt fyrir sér um Rodri Fótbolti Spánverjar heimsmeistarar Fótbolti Íslenska víkingaklappið lifir: FH-strákarnir unnu Gothia Cup Sport Fleiri fréttir Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Sjá meira