Viðskipti innlent

Reykjanesbær gerir ráð fyrir rekstrarafgangi á næsta ári

Fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar fyrir næsta ár gerir ráð fyrir að rekstrarafgangur bæjarsjóðs nemi um 100,9 milljónum kr. og afgangur samstæðu verði um 375,9 milljónir kr.

Í tilkynningu segir að rekstrarafgangur fyrir fjármagnsliði, að teknu tilliti til reiknaðra liða, nemur um 220,9 milljónum kr.

Eignir pr. íbúa eru áætlaðar 2.492 þúsund kr. og skuldir pr. íbúa 2.033 þúsund kr. Veltufé frá rekstri er áætlað um 860,8 milljón kr. fyrir bæjarsjóð og um 2.380,7 milljónir kr. fyrir samstæðu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×