Jónatan: Greddan var okkar megin Hjalti Þór Hreinsson skrifar 18. mars 2010 21:56
Jónatan Magnússon segir að Akureyringa hafi einfaldlega hungrað meira í sigur en FH-inga. Akureyri vann leik liðanna í kvöld 33-30. Við ræddum fyrri hálfleikinn fyrst og hvort að Akureyri hefði ekki átt að vera búið að klára leikinn. "Sex mörk er fínt í hálfleik. Maður gerir sér ekki alltaf grein fyrir því hvernig andstæðingurinn er að verja. Við skoruðum 18 mörk og vorum að spila fína vörn á meðan. Það var sex marka munur á hálfleikjunum, það var bara þannig." "Við vissum að þeir myndu ekki verja svona lítið í seinni hálfleiknum. Þeirra möguleiki var á síðastu 10 mínútunum í seinni hálfleik og eftir þrjár mínútur var tveggja marka munur. Úr því sem komið var er ég ánægður með sigurinn og liðsheildina. Við erum að fá mörk úr öllum stöðum og Flóki var frábær. Baráttan var frábær og það var sætt að vinna þetta." "Mér fannst holningin á liðinu vera þannig að þetta var okkar leikur. Þetta var aldrei neitt hrun og okkur leið vel. Þeir áttu fínan kafla en ekki meira en það."Líturðu á þetta sem hefnd gegn FH eftir þrjú töp á tímabilinu fyrir þennan leik."Það hefði verið ferlegt að tapa fjórða leiknum, og mæta þeim svo hugsanlega kannski í úrslitakeppninni. En greddan var okkar, okkur langaði hrikalega í þessi stig." "Áhorfendur voru líka frábærir, það er gaman að fólki sé boðið og það er gaman að vinna stóru leikina, sem hefur ekki alltaf tekist hjá okkur. En núna brotnuðum við ekki og það var frábært fyrir framhaldið. Svo fáum við fullt hús næst líka," sagði fyrirliðinn Jónatan glaðbeittur, en hann skartar glæsilegri mottu þessa dagana í tilefni af Mottumars.
Olís-deild karla Mest lesið Þór - Víkingur 2-1 | Þórsarar fyrstir til að vinna Víkinga Íslenski boltinn Bætti heimsmet í míluhlaupi sem hafði staðið í 27 ár Sport „Sturlað“ að mæta Yamal eftir að hafa baðað hann Fótbolti Martínez sleppti aðgerð og spilar meiddur Fótbolti Fjórtán ára í byrjunarliði Vals Íslenski boltinn Ætlaði allt um koll að keyra: „Óttuðust að það yrðu óeirðir“ Sport DeChambeau refsað eftir hringinn og dettur niður í fimmta sæti Golf Taylor fagnar ákaft: „Sjáið hvað hún er reið, alveg brjáluð“ Íslenski boltinn Meira en 200 lönd styðja Infantino til fjórða kjörtímabils sem forseta Fótbolti Tuchel axlar ábyrgð á tapinu Fótbolti Fleiri fréttir Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Sjá meira