Frekari skattahækkanir framundan á næstu árum 5. október 2010 06:53
Greining Arion banka telur að samkvæmt langtímaáætlun stjórnvalda um fjármál ríkisins sé verið að boða frekari skattahækkanir á árunum 2012 og 2013. Þetta kemur fram í Markaðspunktum greiningarinnar þar sem fjallað er um fjárlagafrumvarpið fyrir næsta ár. Í Markaðspunktunum segir að gert sé ráð fyrir að ríkissjóður skili afgangi frá og með árinu 2012. Afgangurinn kemur eingöngu frá tekjuhliðinni, en gert er ráð fyrir 55-66 milljarða kr. tekjuaukningu á árunum 2012-2013 sem er athyglisverð niðurstaða í ljósi þess að forsendur hagvaxtar eru hóflegar á næstu árum en gert er ráð fyrir 2-3% hagvexti fram til ársins 2014. „Út frá hagvaxtarhorfum er því ljóst að þessi mikla tekjuaukning stenst í raun ekki nema gripið verði til frekari skattahækkana á árunum 2012-2013. Má því velta fyrir sér hvort inni í langtímaáætluninni sem gefin var út samhliða fjárlagafrumvarpinu séu boðaðar skattahækkanir fyrir næstu ár," segir í Markaðspunktunum. Tekjuhlið ríkissjóðs byggist á þjóðahagsspá Hagstofunnar sem birt var í júní sl. Gert er ráð fyrir rúmlega þriggja prósenta hagvexti á næsta ári, sem drifin verður áfram af kröftugum viðsnúningi í einkaneyslu og atvinnuvegafjárfestingu. „Að okkar mati eru hagvaxtarspáin fyrir næsta ár fullbjartsýn enda er kaupmáttur fallinn og ólíklegt að hann nái sér almennilega á strik á næsta ári, þá er atvinnuleysi enn hátt og væntingar daprar hjá heimilum. Að sama skapi eru útlit fyrir að litlar framkvæmdir séu framundan og ólíklegt að af framkvæmdum verði við Helguvík, en gert er ráð fyrir þeim í spáforsendum hjá Hagstofunni," segir í Markaðspunktunum. „Aftur á móti er ljóst að framkvæmdir við Straumsvík verða eitthvað umfangsmeiri en gert hafði verið ráð fyrir. Niðurstaðan er þó sú að verði hagvöxtur minni en þjóðhagsspá Hagstofunnar gerir ráð fyrir þá er ljóst að grípa þarf til frekari aðhaldsaðgerða til að ná fram settum markmiðum um jöfnuð í ríkisfjármálum, hvort sem er í formi skattahækkana eða frekari niðurskurði útgjalda."
Mest lesið Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Neytendur Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfan sig í gjafavali Atvinnulíf Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Eldsneytisverð lækkar um tæplega hundrað krónur á nýju ári Neytendur Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Viðskipti innlent Lengja opnun, gleðja starfsfólk og spara peninga Neytendur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Viðskipti innlent Jólabarnið týndist: „Ég er að færast upp skalann aftur, segi sex“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ 15 ára afmæli kynjakvóta: „Langt frá því að vera fyrirmyndarríkið sem við teljum okkur vera“ Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Tekur við þjálfun kokkalandsliðsins Brú Talent kaupir Geko Consulting Halli hins opinbera minnkaði um 39 milljarða Sjá meira