Orkuveitan og Ölfus í samningum um kísilver 9. febrúar 2010 18:32
Samningar eru í burðarliðnum um risastóra kísilverksmiðju í Þorlákshöfn. Fjárfestingin næmi um 150 milljörðum króna og yfir þrjúhundruð framtíðarstörf skapast. Samningar um verksmiðju sem framleiddi kísil í sólarrafhlöður voru raunar langt komnir fyrir tveimur árum við norskt fyrirtæki en það hætti við og ákvað að reisa verksmiðjuna í staðinn í Kanada. Nú er það hins vegar fyrirtæki vestanhafs sem áformar slíka uppbyggingu við Þorlákshöfn en samkvæmt heimildum Stöðvar 2 er stefnt að því að samningsrammi um verksmiðjuna verði undirritaður á næstu dögum milli fyrirtækisins, Orkuveitu Reykjavíkur og Sveitarfélagsins Ölfuss. Þetta yrði gríðarstórt verkefni, sannkölluð stóriðja. Umfang framkvæmda slagar upp í hálft álver, og yfir þrjúhundruð framtíðarstörf verða til, þar af um eitthundrað sem krefjast háskólamenntunar. Undirritun skilar málinu þó ekki í höfn, stór óvissuþáttur verður óleystur fyrir Orkuveituna; að tryggja sér lánsfé til virkjanaframkvæmda. Athygli vekur að ríkisstjórnin kemur hvergi nærri undirbúningi þessa verkefnis en henni hefur, þrátt fyrir gefin fyrirheit í stöðugleikasáttmála, ekki tekist að koma stórframkvæmdum í gang í landinu en mátt sitja undir gagnrýni fyrir að tefja og hindra slík áform. Orkuveita Reykjavíkur hyggst selja orku Hverahlíðarvirkjunar til kísilversins en sú orka myndi annars að öllum líkindum fara til álvers í Helguvík. Tímabundið forgangsréttarákvæði tryggir hins vegar Sveitarfélaginu Ölfusi þessi 90 megavött frá Hellisheiði, svo fremi að kaupandi finnist þar fyrir lok maímánaðar næstkomandi. Takist samningar um kísilver færi orkan þannig til Þorlákshafnar en jafnframt myndi aukast óvissa um orkuöflun fyrir álver í Helguvík.
Mest lesið Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Fleiri fréttir Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Sjá meira