Riftunarmál gegn fyrrverandi bankastjórum þingfest 2. september 2010 11:48 Fyrrverandi bankastjórar Landsbankans. Mynd/ BG.
Riftunarmál Landsbankans vegna uppgjörs á kaupaukasamningum upp á 400 milljónir króna rétt fyrir bankahrun voru þingfest í morgun. Riftunarmálin beinast gegn fyrrverandi bankastjórum Landsbankans og einum millistjórnanda. Eins og fréttastofa greindi frá í síðustu viku ætlar slitastjórn Landsbankans að krefjast fjögur hundruð milljóna króna af fyrrverandi yfirstjórnendum bankans og einum millistjórnanda en þeir innleystu kaupréttarsamninga skömmu fyrir hrun - þrátt fyrir að þeir væru ekki innleysanlegir fyrr en um tveimur mánuðum síðar. Mál Sigurjóns Árnasonar og Halldórs Kristjánssonar, fyrrverandi bankastjóra voru þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Mál stjórnanda fyrirtækjasviðs var þingfest í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Málunum var öllum frestað um nokkrar vikur, á meðan lögmenn útbúa greinargerðir. Samkvæmt heimildum fréttastofu er Sigurjón Árnason krafinn um 200 milljónir króna og Halldór Kristjánsson og yfirmaður fyrirtækjasviðs krafnir um hundrað milljónir hvor. Hingað til hefur slitastjórnin lokið nokkrum riftunarmálum með samkomulagi og heimtum á um einum og hálfum milljarði króna. Þá er slitastjórnin með í lokaundirbúningi tvö skaðabótamál þar sem tjón bankans er talið nema tugum milljarða króna.
Mest lesið Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Viðskipti innlent Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Viðskipti innlent „Þetta er bara algjörlega galið“ Neytendur Jólakjötið töluvert dýrara í ár Neytendur Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Viðskipti innlent Fá dagsektir fyrir villandi verðskrá Neytendur Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Viðskipti innlent Algeng meiðsli fótboltamanna kveikjan að appinu sem hún þróaði Atvinnulíf Skipta dekkin máli? Samstarf Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ 15 ára afmæli kynjakvóta: „Langt frá því að vera fyrirmyndarríkið sem við teljum okkur vera“ Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Tekur við þjálfun kokkalandsliðsins Brú Talent kaupir Geko Consulting Halli hins opinbera minnkaði um 39 milljarða Spá aukinni verðbólgu um jólin Skatturinn endurgreiði áfram ofgreiddan skatt Bein útsending: Skattspor ferðaþjónustunnar Ýmsar forsendur Hæstaréttar um skilmálann jákvæðar „Ég tel að þessi dómur hafi takmarkað fordæmisgildi“ Skilmálarnir skýrir og Arion banki sýknaður í vaxtamálinu Martraðarverktaki Kópavogsbæjar greiddi ekki krónu með gati Ætlar að endurreisa Niceair Steinþór aftur sviðsstjóri Orku hjá Eflu DiBiasio og Beaudry til Genis Greiða tryggðar pakkaferðir úr Ferðatryggingasjóði eftir áramót Vaxtamálið: Niðurstaða um verðtryggðu lánin á morgun Kristín og Birta ráðnar til Origo Gengi Skaga tekur dýfu eftir tilkynningu Íslandsbanka Enn að rannsaka samráð í sorphirðu Hluthafar Íslandsbanka krefjast stjórnarkjörs Ferðamálastofa fellir úr gildi starfsleyfi Eagle golfferða Fjöldi erlendra farþega stendur í stað en Íslendingum fækkar Sjá meira