Íris: Ekki alveg tilbúnar að fara í sumarfrí strax Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. apríl 2010 21:00 Íris Ásgeirsdóttir, fyrirliði Hamars. Mynd/Stefán
Íris Ásgeirsdóttir, fyrirliði Hamars, brosti út að eyrum eftir 81-75 sigur á KR í Hveragerði í dag en Hamar náði þar með að jafna úrslitaeinvígið í 2-2 og tryggja sér oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn. „Við byrjuðum ekki nógu vel og ég veit ekki af hverju. Við náðum okkur hinsvegar út úr því og fórum að spila okkar leik þegar leið á annan leikhlutann," sagði Íris eftir leikinn. „Það skipti miklu máli fyrir okkur að allir voru að leggja sitt að mörkum til liðsins. Þetta hefði getað orðið síðasti leikurinn en við vorum ekki alveg tilbúnar að fara í sumarfrí strax," sagði Íris sem skoraði fimm af sjö stigum sínum á mikilvægum tímapunkti í lok þriðja leikhluta. „Það var ótrúlegt að sjá alla þessa áhorfendur standa með okkur. Það er búið að vera troðfullt hús á hverjum einasta leik og það er æðislegt að spila svona leiki þegar það er svona mikil stemmning," sagði Íris. Hamar lenti 1-2 undir á móti Keflavík en vann 3-2 og nú er liðið búið að jafna einvígið á móti KR í 2-2. „Okkur hefur tekist að fara erfiðustu leiðina í þessu og vonandi náum við bara að klára þetta núna í oddaleiknum á þriðjudaginn. Við ætlum allavega að gefa allt í þann leik," sagði Íris að lokum.
Dominos-deild kvenna Mest lesið PSG - Arsenal | Bikarinn sem beðið hefur verið eftir Fótbolti Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti Fleiri fréttir Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Sjá meira