Greining Arion banka spáir hjöðnun verðbólgu niður í 3% 18. nóvember 2010 07:53
Greiningardeild Arion banka spáir 0,4% hækkun vísitölu neysluverðs (VNV) í nóvember. Gangi spáin eftir mun tólf mánaða verðbólga mælast 3% samanborið við 3,3% í október. Þessi spá er í takt við aðrar sem birst hafa í vikunni. Fjallað er um málið í Markaðspunktun greiningarinnar. Þar segir að helstu þættir í spánni eru að heimsmarkaðsverð á hrávörum mælt í erlendri mynt (t.d. olía, korn, kaffi og hveiti) hefur hækkað síðustu mánuði og má sjá þessar hækkanir koma fram í verðmælingunni nú í nóvember. T.a.m. mun hækkun á eldsneytisverði skila sér í +0,13% hækkun VNV að þessu sinni. „Þá gerum við ráð fyrir áframhaldandi hækkunum á verði matvæla í nóvember, en einhverjar hækkanir komu fram í októbermælingu Hagstofunnar," segir í Markaðspunktunum. Ekki komu heildaráhrif vegna gjaldskrárhækkunar hjá OR í síðasta mánuði þar sem enn var beðið eftir staðfestingu frá Orkustofnun vegna dreifingar rafmagns. Þessi staðfesting hefur nú fengist og mun hækka vísitöluna um 0,12%. Þrátt fyrir að fasteignamarkaður sé í miklum hægagangi þá er húsnæðisliðurinn að hafa áhrif til hækkunar verðlags. „Eins og glöggir lesendur muna voru áhrif húsnæðisliðarins sterk í október samkvæmt Hagstofunni, þ.e. til hækkunar. Fastlega má gera ráð fyrir því að húsnæðisliðurinn hafi áhrif til hækkunar í nóvember og desember enda tekið mið af breytingum síðustu þrjá mánuði. Þó ber að hafa þann vara á að afar erfitt getur verið að spá fyrir um þróun húsnæðisliðarins þar sem samband fasteignavísitölu FMR og Hagstofunnar er afar sveiflukennt," segir í Markaðspunktunum. „Flugfargjöld hækkuðu í síðasta mánuði og gerum við ráð fyrir að sú hækkun gangi tilbaka í nóvember. Almennt er hækkun einn mánuðinn ávísun á svipaða lækkun þann næsta (áhrifin verða því svipuð og áttu sér stað á sama tíma í fyrra). Annars er erfitt að benda á stóra þætti sem lækka VNV í nóvember en þó gæti styrking krónunnar haft þar jákvæð áhrif."
Mest lesið Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Viðskipti innlent Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Viðskipti innlent Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Viðskipti innlent Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp Viðskipti erlent Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Viðskipti innlent „Krakkarnir spyrja langmest“ – íslenskar fjölskyldur flykkjast á Lava Show Samstarf Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu Viðskipti innlent Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Viðskipti innlent Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Viðskipti innlent Úr Símanum í rörin Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Úr Símanum í rörin Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Icelandair grunar flugmenn um græsku Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Gengi Alvotech tekur kipp Alvotech stóðst úttekt FDA Sláandi hve mikið skattarnir hafi hækkað Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Sjá meira