EFS er með Reykjanesbæ í gjörgæslu 3. febrúar 2010 05:00 Eftirlitsnefnd um fjármál sveitarfélaga hefur ekki áður kallað eftir ársfjórðungslegu uppgjöri nema fyrir liggi samningur um aðkomu nefndarinnar að fjármálum sveitarfélags. Fréttablaðið/GVA
Eftirlitsnefnd um fjármál sveitarfélaga (EFS) ætlar ekki að aðhafast í málum Reykjanesbæjar að svo stöddu en ítrekar varnaðarorð um óvissu í rekstrarforsendum og fjárhagsstöðu sveitarfélagsins. EFS kallar eftir að fá reikningsskil frá Reykjanesbæ send ársfjórðungslega með samanburði við fjárhagsáætlun ársins 2010. Þá verði ársreikningur fyrir 2009 lagður fram sem fyrst. Að sögn Jóhannesar Finns Halldórssonar, framkvæmdastjóra EFS, hefur ekki áður verið óskað eftir ársfjórðungslegum uppgjörum hjá sveitarfélögum, nema þau hafi áður leitað til EFS og gert við hana samning um fjármál sín. Í bréfi EFS segir að samkvæmt lögum sé sveitarfélögum skylt að gæta þess að heildargjöld fari ekki fram úr heildartekjum. Fjárhagsáætlun 2010 geri ráð fyrir hallalausum rekstri Reykjanesbæjar en nokkur óvissa sé um forsendur. Þar sé m.a. gert ráð fyrir verulegri fjölgun starfa í sveitarfélaginu. „Gangi áætlunin ekki eftir er ljóst að bregðast þarf við afleiðingum þess,“ segir í bréfinu. EFS gerir athugasemd við staðhæfingar sveitarfélagsins um að viðsnúningur hafi orðið í rekstrinum vegna viðskipta með eignir sveitarfélagsins í HS hf. á síðasta ári og að vegna sölu á eignum megi gera ráð fyrir sjö milljarða hagnaði við lokauppgjör ársins 2009. EFS vekur athygli á að framlegð frá rekstri sé neikvæð um 639 milljónir króna samkvæmt árshlutauppgjöri frá 31. október. Þar komi fram að hagnaður af sölu hlutabréfa nemi 11,7 milljörðum króna. Verulega vanti á „að hinn reglubundni rekstur sveitarsjóðs skili viðunandi niðurstöðu“. Eftir eignasöluna séu skuldir „enn verulega yfir eðlilegum mörkum“. Fjárhagsstaðan sé þó mun betri og gert ráð fyrir að peningalegar eignir, sem fengust við eignasöluna og eru í formi skuldabréfa, verði nýttar til að greiða niður skuldir. Spurður við hvað EFS miði eðlileg mörk skulda og skuldbindinga, segir Jóhannes Finnur að í því sambandi sé yfirleitt miðað við um 150 prósent af tekjum. Fyrir sölu eigna í HS námu skuldir og skuldbindingar bæjarins um 450 prósentum af tekjum. Eignasalan upp á 11,8 milljarða hefur lækkað það hlutfall um meira en 200 prósent, miðað við áætlun um 5,6 milljarða króna tekjur á þessu ári. peturg@frettabladid.is
Mest lesið Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Innlent Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Erlent Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Innlent Mesti snjór í New York í fjögur ár Erlent Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Maðurinn sem var næstur í röðinni hjá mormónum látinn Erlent Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Innlent Líkamsárás í miðbænum Innlent Þrír létust í óveðrinu Erlent Fleiri fréttir Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Margfaldur þungi í loftárásum og kyntákn kveður Afbrot, fjölmiðlastyrkir og stefna Miðflokksins Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Líkamsárás í miðbænum Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum „Fara þarf í raunverulegar aðgerðir“ Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Landeldi í vexti og lögregla lokar áfengisverslunum Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Umferðin róleg í kirkjugörðunum Sjá meira