Sólin skín fékk þrjá milljarða frá Baugi án veða Þorbjörn Þórðarson skrifar 3. febrúar 2010 18:45
Glitnir gerir kröfu upp á 8 milljarða króna í félagið Sólin skín, sem var eigu Baugs, Fons, Glitnis og Kevins Stanfords. Baugur Group lánaði fyrirtækinu þrjá milljarða króna án nokkurra trygginga. Sólin skín er gjaldþrota og fullkomlega eignalaust. Sólin skín var úrskurðað gjaldþrota í lok síðasta árs. Tilgangur félagsins var að fjárfesta í hlutabréfum í bresku verslanakeðjunni Marks og Spencer. Kröfur í þrotabúið nema alls þrettán milljörðum króna. Þær gætu orðið hærri en frestur til að lýsa kröfum er ekki runninn út. Skilanefnd Glitnis er að gera kröfu í búið upp á alls átta milljarða króna. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu er um að ræða kröfur sem upphaflega voru til komnar vegna skuldabréfa, þ.e beinna lánveitinga Glitnis til félagsins en þessum kröfum virðist síðar hafa verið breytt í samninga um framvirk hlutabréfaviðskipti. Þrotabú Baugs Group er að gera kröfur upp á þrjá milljarða króna á Sólina skín, en eftir því sem næst verður komist er þrotabú Sólarinnar fullkomlega eignalaust. Erlendur Gíslason, skiptastjóri þrotabús Baugs Group, sagði í samtali við fréttastofu að krafa þrotabús Baugs væri almenn krafa vegna lánveitinga. Stefán Hilmarsson, fyrrverandi fjármálastjóri Baugs, sagði í samtali við fréttastofu að kröfur Glitnis hefðu eingöngu verið vegna framvirkra hlutabréfaviðskipta. Stefán sagði að Glitnir banki hefði gert veðkall á félagið rétt fyrir bankahrunið haustið 2008 og í kjölfarið selt hlutabréfin í Marks og Spencer. Hann sagði að bankinn þyrfti að svara því hvers vegna hann væri að gera kröfur í þrotabú Sólarinnar núna upp á átta milljarða króna. Ekki fengust svör við því hjá skilanefnd Glitnis í dag.
Mest lesið Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Viðskipti innlent Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Atvinnulíf Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Viðskipti innlent Ekki allir geta sagt: „Ég græddi fúlgur fyrir fyrirtækið í dag“ Atvinnulíf Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Viðskipti innlent Kaffitár hressir ferðalanga sem stoppa á Olís Samstarf Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Viðskipti erlent Nýtt á Íslandi: Auglýsingalausn sem sameinar sjónvarp og samfélagsmiðla Samstarf Fleiri fréttir Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst María nýr stjórnarformaður SVEIT Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Sjá meira