Hagfræðingar Seðlabankans voru hræddir við almenningsálitið Þorbjörn Þórðarson skrifar 2. nóvember 2010 12:07 Már var að vísa til umræðunnar í samfélaginu þegar hann sagði að sérfræðingar Seðlabankans hefðu ekki þorað að setja fram spár sínar árið 2006.
Seðlabankastjóri var að vísa til umræðunnar í þjóðfélaginu þegar hann sagði að sérfræðingar bankans hefðu verið skammaðir fyrir of svartsýnar spár og að þeir hefðu því ekki þorað að setja fram réttar spár um samdrátt í landsframleiðslu á árinu 2006. Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, var meðal framsögumanna á haustráðstefnu KPMG á fimmtudaginn. Í ræðu sinni sagði Már að hagfræðingar seðlabankans hefðu strax á árinu 2006 spáð fyrir um mikinn samdrátt sem varð hér á landi í landsframleiðslu á síðasta ári. Þeir hefðu ekki þorað að setja fram réttar spár og hefðu í raun verið skammaðir fyrir þær spár sem settar voru fram. „Allt frá árinu 2006 var spáð því að það yrið samdráttur á árinu 2009. Að vísu var ekki verið að spá mjög miklum tölum hér framan af, kannski 2- 3 prósent, en starfsfólk bankans segir mér að líkönin hafi skilað miklu hærri tölum, þau þorðu bara ekki setja þær fram og voru nú mikið skömmuð fyrir þessar spár," sagði Már. Fréttastofa óskaði eftir skýringum á því hvað seðlabankstjóri átti við í ræðu sinni og hver það hefði verið sem hefði skammað sérfræðinga bankans. Þau svör bárust frá skrifstofu bankastjóra að Má hefði verið tjáð að á sínum tíma hefði verið nefnt í almennri umræðu í samfélaginu að bankinn væri of svartsýnn í sínum spám. Á töflu sem Már sýndi á ráðstefnunni á fimmtudag kom fram samdráttur á árinu 2009 í spá sem sett hafði verið fram á árinu 2006. Þessum spám hefði ekki verið vel tekið af einhverjum í samfélaginu. Í svörum bankans segir jafnframt að seðlabankastjóri hafi ekki nákvæmar upplýsingar um þessa umræðu í samfélaginu, enda hafi hann ekki verið á landinu þegar hún fór fram.
Mest lesið Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Viðskipti innlent Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Viðskipti innlent Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Viðskipti erlent Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Viðskipti innlent Regluleg viðskipti hjá Orkunni skila viðskiptavinum raunverulegum ávinningi Samstarf Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Neytendur Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Viðskipti innlent Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Viðskipti innlent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Viðskipti innlent OpenAI setur einnig stefnuna á hlutafjárútboð Viðskipti erlent Fleiri fréttir Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Flugmenn og Icelandair funda á morgun Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Sjá meira