HK færði FH sitt fyrsta tap í vetur Henry Birgir Gunnarsson skrifar 23. október 2010 17:19 Ólafur Guðmundsson fann sig engan veginn í dag.
Markvörðurinn Björn Ingi Friðþjófsson og skyttan Ólafur Bjarki Ragnarsson voru mennirnir á bak við magnaðan sigur HK á FH í N1-deild karla í dag. Björn Ingi varði eins og berserkur allan leikinn og HK vann, 35-32. Þetta var fyrsta tap FH í deildinni en HK heldur áfram að koma á óvart og er nú jafnt að stigum við FH. HK var með frumkvæðið nánast allan leikinn. FH-ingar voru ekki líkir sjálfum sér, daufir, spiluðu lélega vörn og virtust halda að hlutirnir kæmu af sjálfu sér. Það kann aldrei góðri lukku að stýra en það verður samt ekkert tekið af HK. Þeir börðust grimmmilega, voru klókir og áttu svör við flestu sem FH-ingar buðu upp á. Það var þó aðallega markvarsla Björns Inga sem skildi á milli en hann varði hreint ótrúlega að þessu sinni eða 25 skot. FH-ingar tóku góðan dauðakipp á lokamínútunum og náðu muninum niður í tvö mörk en það var of lítið og of seint. Ólafur Bjarki Ragnarsson átti magnaðan leik fyrir HK og skoraði 12 mörk. Bjarkí Már Elísson var einnig öflugur með 8 mörk. Atli Ævari Ingólfsson skoraði 7. Hjá FH var Ásbjörn Friðriksson með 9 mörk og Logi Geirsson skoraði 6.
Olís-deild karla Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Fleiri fréttir Sigurganga Hauka heldur áfram Hvert sæti skipað í Laugardalshöll Teitur kallaður inn í landsliðið vegna meiðsla Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Sjá meira