Guðmundur: Landin kannski betri en Hvidt Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Linz skrifar 18. janúar 2010 16:00 Niklas Landin.
Daninn Niklas Landin þykir efnilegasti markvörður Dana og þrátt fyrir ungan aldur eru margir sem vilja meina að hann eigi að taka stöðu aðalmarkvarðar danska landsliðsins í stað hins margreynda Kasper Hvidt. Landin er 21 árs gamall og þekkir íslenski landsliðsþjálfarinn, Guðmundur Guðmundsson, hann vel. Guðmundur er nefnilega þjálfari Landin hjá GOG í Danmörku. „Jú, hann er vissulega stórkostlegur markvörður en ég ætla nú ekki að láta hann líta of vel út í fjölmiðlum," sagði Guðmundur við Vísi. „En hann er vissulega frábært efni. Eftir að ég kom til GOG hefur hann fengið að spila meira og hefur staðið sig mjög vel." Guðmundur segir að það kæmi honum ekki á óvart ef hann fengi talsvert að spila á EM. Og jafnvel að hann taki stöðu Hvidt í byrjunarliðinu. „Það kæmi mér ekki á óvart ef þeir myndu byrja með Hvidt í markinu og ef hann stendur sig vel heldur hann kannski sæti sínu. En Landin er alveg jafn góður og kannski betri. Hann er þó yngri og reynsluminni en geysilegt efni." Einn af styrkleikum Landin þykir að hann virðist vera með stáltaugar. „Það er fátt sem kemur honum úr jafnvægi," sagði Guðmundur. „Ég veit líka vel að hann er í mjög góðu formi. Hann er vissulega mjög góður markvörður - en það er Kasper Hvidt líka." Danir mæta í dag Austurríkismönnum en keppni á EM í handbolta hefst á morgun. Þess má svo geta að vegna fjárhagsvandræða GOG hefur Landin ákveðið að ganga til liðs við Bjerringbro-Silkeborg og fer hann til liðsins strax eftir að EM lýkur í Austurríki.
Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn Hleypur yfir alla Alpana á mettíma Sport Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Enski boltinn Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Körfubolti Skotarnir staðfesta að Víkingur hafi keypt íslensku landsliðskonuna Íslenski boltinn Í skýjunum eftir sögulegan sigur: „Þetta var dýrðardagur“ Íslenski boltinn Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Fleiri fréttir Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Sjá meira