Viðskipti innlent

Málaferli gætu dregist á langinn og skaðað Ísland

Þetta kann að hafa áhrif á framgang Icesave-viðræðnanna.
Þetta kann að hafa áhrif á framgang Icesave-viðræðnanna.
Kröfuhafar stóru föllnu bankanna þriggja segja að málaferli þeirra á hendur íslenska ríkinu vegna neyðarlaganna gætu dregist á langinn árum saman og orðið mjög skaðleg fyrir Ísland. Þeir hyggjast hnekkja því ákvæði neyðarlaganna sem kveður á um forgangsrétt innstæðueigenda, en greint er frá þessu á vef breska dagblaðsins The Guardian.

Haft er eftir bandarískum lögmanni sem gætir hagsmuna meira en eitt hundrað fjármálafyrirtækja að þetta kunni að hafa áhrif á framgang Icesave-viðræðnanna, þar sem niðurstaða málaferlanna gæti haft áhrif á hugsanlegan samning við Breta og Hollendinga vegna tjóns þarlendra sparifjáreigenda.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×