Gert að greiða fjórar milljónir vegna samkeppnisbrota 7. október 2010 16:24
Samtök atvinnurekenda í raf- og tölvuiðnaði (SART) hafa viðurkennt brot á samkeppnislögum og þurfa að greiða fjórar milljónir í sektir. Samtökin eru mynduð af sjö félögum rafverktaka af öllu landinu ásamt Félagi rafeindatækni fyrirtækja. Rannsókn Samkeppniseftirlitsins á starfsemi SART hófst í kjölfar kvörtunar fyrirtækis í lok síðasta árs. Rafverktökum í samtökunum hafði verið meinað að eiga viðskipti við kvartanda þar sem ágreiningur var milli hans og rafverktaka innan samtakanna vegna uppgjörs á verksamningi þeirra á milli. Við athugun Samkeppniseftirlitsins kom í ljós að SART höfðu jafnframt brotið gegn a.m.k. þremur öðrum fyrirtækjum á rannsóknartímabilinu. Þetta gerðu SART með því að senda tilkynningu til rafverktaka innan samtakanna um að sniðganga fyrirtæki sem áttu í viðskiptalegum ágreiningi við félagsmenn SART. Byggði þessi framkvæmd á s.k. samskiptareglum aðildarfélaga SART. SART viðurkenna að hafa brotið samkeppnislög með útgáfu og beitingu þessara samskiptareglna. Meðan á málsmeðferð stóð óskuðu SART eftir því að sátt yrði gerð í málinu. Upplýstu samtökin að þau hyggðust afnema hin umdeildu ákvæði úr samskiptareglum sínum og afturkalla tilkynningar til rafverktaka um verkbönn.
Mest lesið Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Viðskipti innlent Íslendingar borgi 55 prósent meira fyrir matvöru Viðskipti innlent Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Viðskipti innlent Fjárfestu í karllægum félögum og báðu síðan um fund með forstjóranum Atvinnulíf Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Viðskipti innlent Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Viðskipti innlent Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Viðskipti innlent Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Viðskipti erlent Regluleg viðskipti hjá Orkunni skila viðskiptavinum raunverulegum ávinningi Samstarf Fleiri fréttir Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Íslendingar borgi 55 prósent meira fyrir matvöru Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Flugmenn og Icelandair funda á morgun Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Sjá meira