Viðskipti innlent

Góðgerðasamtök á Íslandi verða af rúmum hálfum milljarði

Valur Grettisson skrifar
William Fall var bankastjóri Straums.
William Fall var bankastjóri Straums.

Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði kröfu William Fall, fyrrverandi forstjóra Straums-Burðaráss en hann krafðist þess að fá þrjár milljónir evra greiddar í vangoldin laun.

Héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu að William hafði sagt upp í bankanum, sem var þjóðnýttur á síðast ári, án fyrirvara og óskað þess að upssögn hans tæki strax gildi.

Talið var að með því hefði ráðningarsamningur aðila fallið úr gildi, og um leið þau réttaráhrif sem við hann voru bundin. Kröfum Williams var því hafnað.

Í viðtali í Kastljósi í nóvember 2009 sagði William að hann vildi ekki hagnast á íslenska bankahruninu. Því ætlaði hann að gefa féð, um 640 milljónir króna, til góðgerðamála yrði krafan samþykkt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×