Heimsmeistararnir úr leik og heimamenn áfram ósigraðir Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. september 2010 09:00 Milos Teodosic fagnar sigurkörfu sinni. Mynd/AP
Tyrkir og Serbar tryggðu sér í gær sæti í undanúrslitunum á HM í körfubolta, Tyrkir með öruggum og sannfærandi sigri á Slóvenum en Serbar eftir æsispennandi leik á móti fráfarandi heimsmeisturum Spánverja. Heimsmeistarar Spánverjar eru leik eftir dramatískan lokakafla í 89-92 tapi á móti Serbum þar sem að Milos Teodosic skoraði sigurkörfu Serbíu, langt fyrir utan þriggja stiga línuna, þegar aðeins 3,1 sekúnda var eftir. Serbar voru með átta stiga forustu þegar fjórar mínútur voru eftir en Spánverjar náðu að vinna það forskot upp á lokamínútunum. Teodosic tók síðan skotið af mjög löngu færi þrátt fyrir, að hafa aðeins hitt úr 1 af 7 þriggja stiga skotum sínum, fyrr í leiknum. Marko Keselj og Novica Velickovic skoruðu mest 17 stig fyrir Serba sem hittu úr 15 af 30 þriggja stiga skotum sínum í leiknum. Juan Carlos Navarro skoraði 27 stig fyrir Spán. Tyrkir héldu sigurgöngu sinni áfram á heimavelli og eru komnir í fyrsta sinn í sögunni í undanúrslit á HM eða Ólympíuleikum. Tyrkir unnu 95-68 sigur á Slóvenum og hafa unnið alla sjö leiki sína í keppninni til þessa. Ersan Ilyasova skoraði 19 stig fyrir tyrkneska liðið sem hitti úr 10 af 17 þriggja stiga skotum sínum þar af 8 af 11 í fyrri hálfleik þar sem þeir voru búnir að ná 50-31 forustu. Tyrkir hafa unnið tvo leiki sína í útsláttarkeppnini með samtals 45 stigum, unnu fyrst Frakka 95-77 í 16 liða úrslitum og svo Slóvena með 27 stiga mun í gær. Tyrkland og Serbía mætast í undanúrslitaleiknum sem fram fer á laugardaginn.
Körfubolti Mest lesið Dómarinn hlýtur mikið lof fyrir stundarbræði í garð Jake Paul og Joshua Sport Haaland gaf barnabarni Hareide gjöf Enski boltinn Ronaldo á nærbuxunum lætur Elon Musk efast um sjálfan sig Fótbolti Tvær títanplötur settar í Jake Paul eftir kjálkabrotið Sport Sjáðu mörkin úr enska: Sviptingar, sænskt þema og svakalegar tæklingar Enski boltinn Stór nöfn úr leik á HM í pílukasti Sport „Ef dómarinn hefði sinnt sínu starfi almennilega hefði Romero ekki fengið spjald“ Enski boltinn Gleði og sorg í sigri Liverpool Enski boltinn Slæm fjárhagsstaða HSÍ kemur ekki niður á EM Handbolti Slot fámáll um stöðuna á Isak Enski boltinn Fleiri fréttir Fékk næstum 4,5 milljóna króna sekt fyrir að sýna dómara fingurinn „Komum eins og aumingjar inn í þennan leik“ „Jólasteikin mun bragðast betur í ljósi þessa sigurs“ Stjarnan - Álftanes 108-104 | Unnu grannaslaginn naumlega Uppgjörið: Ármann - ÍA 102-83 | Ármann náði í gríðarlega mikilvæg stig í fallbaráttunni með sigri gegn Skagamönnum Jokic tók NBA-met af Abdul-Jabbar í nótt KR á frábærum stað en getur ekki unnið titilinn Útilokar ekki breytingar: „Er klárlega að líta í kringum mig“ Uppgjörið: Keflavík - Njarðvík 93-83 | Enn taplausir í Sláturhúsinu „Ánægður að spila ekki betur en þetta en vinna samt“ „Svo lengi sem það er ekki jákvæð og góð umfjöllun um okkur erum við sáttir“ „Hefðum þurft að hafa heppnina með okkur í liði“ ÍR - Valur 82-85 | Baráttusigur í Breiðholti „Sáttur að geta farið heim, borðað vel og fengið mér nokkra kalda“ Tindastóll - KR 130-117 | Kláruðu gestina í seinni hálfleik Þór Þ. - Grindavík 94-106 | Baráttusigur gegn löskuðu liði Þórs Liðsfélagar Guðbjargar ekki fæddir þegar hún spilaði fyrsta leikinn Þola þeir ekki gott umtal? „Helmingur minna leikmanna skilur ekki íslensku“ „Ef við hefðum ekki verið að setja þessi skot þá hefðum við skíttapað“ KR á toppinn Uppgjörið: Grindavík - Haukar 92-93 | Fullkomin jólagjöf Spilaði 13 mínútur en var stigahæstur Rýndu í gamlar myndir: „Svakalega ertu kringlóttur í framan“ Guðbjörg fyrsta konan í fjögur hundruð leikina Stjarnan og Grindavík mætast í bikarnum Tryggvi og Sara best á árinu New York Knicks vann titil í nótt Umfjöllun: Keflavík 97 - 84 Ármann | Sannfærandi sigur heimakvenna Martin áfram í sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar Valskonur ekki í neinum vandræðum á heimavelli Sjá meira
Uppgjörið: Ármann - ÍA 102-83 | Ármann náði í gríðarlega mikilvæg stig í fallbaráttunni með sigri gegn Skagamönnum