Skattalega óhagstætt fyrir ríkið að eigandinn sé sænskt félag 4. ágúst 2010 12:15 HS Orka. Skattasérfræðingur segir það skattalega óhagstætt fyrir ríkið að eigandinn sé sænskt félag en ekki kanadískt.
Það er óhagstæðara fyrir íslenska ríkið að eigandi HS Orku er sænskt félag en ekki kanadískt. Þetta segir forstöðumaður skattasviðs KPMG. Ef eigandinn væri skráður í Kanada, en ekki Svíþjóð, nyti íslenska ríkið aukinna skatttekna vegna eignarhaldsins. Samkvæmt íslenskum lögum ber arðgreiðsla, sem erlent félag fær frá íslensku hlutafélagi, fimmtán prósent skatt sem íslenska félaginu ber að halda eftir af arðgreiðslunni og greiða í ríkissjóð. Símon Þór Jónsson, forstöðumaður skattasviðs KPMG, segir í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag að þetta gildi um öll erlend félög. Það sem skilji á milli landa séu síðan tvísköttunarsamningar. Þannig hafi Ísland gert slíkan samning við Kanada og með honum lækki skatturinn niður í fimm prósent. Tvísköttunarsamningur milli Norðurlandanna feli hins vegar í sér að að arður frá íslensku félagi til sænsks félags sé undanþeginn skattlagningu á Íslandi ef sænska félagið sé raunverulegur móttakandi arðgreiðslunnar. Símon Þór segir að ef horft sé til þessa sé óhagstæða fyrir íslenska ríkið að móttakandi væntanlegra arðgreiðslna frá HS Orku sé sænskt félag heldur en ef það væri kanadískt. Ef gert sé ráð fyrir að fjárfesting Magma Energy í HS Orku verði 30 milljarðar króna til 65 ára og arðurinn af fjárfestingunni verði 5 prósent árlega þá verði heildararðgreiðslur á 65 árum 97,5 milljarðar króna. Ef eigandinn væri kanadískt félag myndu skattekjur íslenska ríkisins verða tæplega 5 milljarðar króna en 0 krónur undir sænsku eignarhaldi eins og fyrirkomulagið sé núna. Símon Þór setur þetta hins vegar fram með þeim fyrirvara að hugsanlega verði litið svo á að hið kanadíska móðurfélag sé raunverulegur móttakandi arðsins þrátt fyrir sænskt eignarhald, ekki sé sjálfgefið að litið verði á hið sænska félag sem eiganda arðsins í skilningi skattalega þótt það sé talinn eigandi í skilningi laga um erlenda fjárfestingu.
Tengdar fréttir Fjárfesting HS Orku upp á tvo milljarða í uppnámi Tveggja milljarða króna fjárfesting HS Orku í gufuhverfli er í uppnámi vegna ákvörðunar stjórnvalda um að koma fyrirtækjum sem nýta orkuauðlindir í meirihlutaeigu ríkisins. 29. júlí 2010 05:00 Beaty geti ekki hætt við kaupin á HS Orku Formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar fær ekki séð að forstjóri Magma Energy geti hætt við kaupin á HS orku. Hann segir að ef ríkið ætli sér að grípa inn í viðskiptin muni Reykjanesbær kanna rétt sinn gagnvart hinu opinbera. 2. ágúst 2010 18:56 Magma opið fyrir því að selja erlendum fjárfesti hlut í HS Orku Magma upplýsti kanadísku kauphöllina um vilja til að selja hlut í HS Orku til annarra erlendra fjárfesta. Fyrirtækið bauð lífeyrissjóðunum fyrir aðeins mánuði að kaupa fjórðungshlut í HS Orku, en ríkissjóður hafði hvatt til þess á fyrri stigum. Þetta var eftir að skrifað hafði verið undir kaup á meirihluta í HS Orku. 28. júlí 2010 18:40 Hjördís skoðar söluna á Magma Hjördís Hákonardóttir, fyrrverandi hæstaréttardómari, verður formaður nefndar, sem forsætisráðherra hefur skipað til þess að meta lögmæti kaupa fyrirtækisins Magma Energy á eignarhlutum í HS Orku og starfsumhverfi orkugeirans hér á landi. 3. ágúst 2010 17:13 Hótar að hætta við kaupin á HS Orku Ross Beaty, forstjóri kanadíska orkufyrirtækisins Magma Energy, hefur hótað að fresta eða jafnvel hætta við kaup fyrirtækisins á HS Orku vegna pólitískrar óvissu, að því er Financial Times greinir frá í dag. 1. ágúst 2010 18:37 Átelur stjórnvöld vegna Magma-máls Viðskiptaráð er mjög óánægt með framgöngu ríkisstjórnarinnar í máli kanadíska fyrirtækisins Magma Energy. Í greinargerð frá Viðskiptaráði um málið segir að hringlandaháttur, stefnuleysi og ákvarðanafælni stjórnvalda í stórum og mikilvægum málum geri mörgum aðilum í atvinnulífinu erfitt um vik. 31. júlí 2010 03:15 Magma segir áskanir Bjarkar vera fráleitar Framkvæmdastjóri Magma Energy á Íslandi hafnar alfarið ásökunum Bjarkar Guðmundsdóttur tónlistarmanns þess efnis að fyrirtækið vilji eignast allar orkuauðlindir á Íslandi. Ummælin lét Björk falla í viðtali við AFP fréttaveituna í Helsinki í Finnlandi í gær. 4. ágúst 2010 04:00 Gæti átt afnotarétt að auðlindinni í mörg hundruð ár Ekkert í gildandi lögum kemur í veg fyrir að afnotaréttur að orkuauðlindum verði framlengdur oftar en einu sinni. Það er því ekkert í lögunum sem bannar Magma Energy að hafa afnotarétt að orkuauðlindum á Reykjanesi í gegnum eignarhald sitt á HS Orku í til dæmis 500 ár. 3. ágúst 2010 18:30 Mest lesið Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Viðskipti erlent Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Atvinnulíf EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Svara tollum Trumps: „Við munum ekki standa aðgerðarlausir hjá“ Viðskipti erlent Trump boðar „frelsun“ Bandaríkjanna Viðskipti erlent Hótar himinháum áfengistollum á Evrópu Viðskipti erlent Fleiri fréttir Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Sjá meira
Fjárfesting HS Orku upp á tvo milljarða í uppnámi Tveggja milljarða króna fjárfesting HS Orku í gufuhverfli er í uppnámi vegna ákvörðunar stjórnvalda um að koma fyrirtækjum sem nýta orkuauðlindir í meirihlutaeigu ríkisins. 29. júlí 2010 05:00
Beaty geti ekki hætt við kaupin á HS Orku Formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar fær ekki séð að forstjóri Magma Energy geti hætt við kaupin á HS orku. Hann segir að ef ríkið ætli sér að grípa inn í viðskiptin muni Reykjanesbær kanna rétt sinn gagnvart hinu opinbera. 2. ágúst 2010 18:56
Magma opið fyrir því að selja erlendum fjárfesti hlut í HS Orku Magma upplýsti kanadísku kauphöllina um vilja til að selja hlut í HS Orku til annarra erlendra fjárfesta. Fyrirtækið bauð lífeyrissjóðunum fyrir aðeins mánuði að kaupa fjórðungshlut í HS Orku, en ríkissjóður hafði hvatt til þess á fyrri stigum. Þetta var eftir að skrifað hafði verið undir kaup á meirihluta í HS Orku. 28. júlí 2010 18:40
Hjördís skoðar söluna á Magma Hjördís Hákonardóttir, fyrrverandi hæstaréttardómari, verður formaður nefndar, sem forsætisráðherra hefur skipað til þess að meta lögmæti kaupa fyrirtækisins Magma Energy á eignarhlutum í HS Orku og starfsumhverfi orkugeirans hér á landi. 3. ágúst 2010 17:13
Hótar að hætta við kaupin á HS Orku Ross Beaty, forstjóri kanadíska orkufyrirtækisins Magma Energy, hefur hótað að fresta eða jafnvel hætta við kaup fyrirtækisins á HS Orku vegna pólitískrar óvissu, að því er Financial Times greinir frá í dag. 1. ágúst 2010 18:37
Átelur stjórnvöld vegna Magma-máls Viðskiptaráð er mjög óánægt með framgöngu ríkisstjórnarinnar í máli kanadíska fyrirtækisins Magma Energy. Í greinargerð frá Viðskiptaráði um málið segir að hringlandaháttur, stefnuleysi og ákvarðanafælni stjórnvalda í stórum og mikilvægum málum geri mörgum aðilum í atvinnulífinu erfitt um vik. 31. júlí 2010 03:15
Magma segir áskanir Bjarkar vera fráleitar Framkvæmdastjóri Magma Energy á Íslandi hafnar alfarið ásökunum Bjarkar Guðmundsdóttur tónlistarmanns þess efnis að fyrirtækið vilji eignast allar orkuauðlindir á Íslandi. Ummælin lét Björk falla í viðtali við AFP fréttaveituna í Helsinki í Finnlandi í gær. 4. ágúst 2010 04:00
Gæti átt afnotarétt að auðlindinni í mörg hundruð ár Ekkert í gildandi lögum kemur í veg fyrir að afnotaréttur að orkuauðlindum verði framlengdur oftar en einu sinni. Það er því ekkert í lögunum sem bannar Magma Energy að hafa afnotarétt að orkuauðlindum á Reykjanesi í gegnum eignarhald sitt á HS Orku í til dæmis 500 ár. 3. ágúst 2010 18:30